Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Síða 25
Arndís Þorvaldsdótlir
Það var fyrir 70 árum
Frá Friðborgu og Osvald Nielsen
r
þessu ári eru 70 ár liðin frá því að
fyrsta skóflustungan var tekin að húsi
því sem fyrst var hafin bygging á
þar sem síðar varð Egilsstaðaþorp. Þegar ég
flutti til Egilsstaða í byrjun árs 1967 vakti
þetta fallega hús strax athygli mína. Þegar ég
spurðist fyrir var mér sagt að það væri teiknað
og byggt af dönskum manni, OsvaldNielsen,
sem ásamt konu sinni Friðborgu Einarsdóttur
var einn af frumbýlingunum í Egilsstaðaþorpi.
Þó að Nielsen, eins og hann var alltaf
kallaður, væri látinn fyrir 5 árum þegar þetta
var, bar nafn hans oft á góma á vinnustað
mínum í Mjólkurstöðinni. Skynjaði ég strax
að um þennan mann áttu vinnufélagar mínir
góða minningar og að störf hans hefðu markað
spor í sögu hinnar ungu byggðar. Seinna var
ég tvisvar sinnum, með fárra ára millibili,
leigjandi í Nielsenshúsi. A fyrra tímabilinu var
Friðborg, ekkjaNielsen, enn á lífi. Naut ég þá
og mín litla íjölskylda umhyggju hennar og
hjálpsemi. Allar götur síðan hefúr mig langað
að festa á blað sögu hússins og þeirra sem það
reistu. Ekki síst þar sem það er nú mikið breytt,
að utan sem innan, frá því sem upphaflega var.
Hans Sören Osvald Nielsen fæddist í
Kaupmannahöfn 2. janúar 1897. Nielsen eins
og hann var alltaf kallaður hér átti í æsku
heima út á Amager. Hann missti komungur
foreldra sína og systur úr berklum og ólst eftir
það upp hjá ömmu sinni sem rak matsölu í
Kaupmannahöfn. Hann fór ungur að vinna
fyrir sér, stundaði nám við landbúnaðarskóla
og við Lýðháskólann í Askov og var síðan í
íþróttaskóla Niels Buck í Ollerup.
Arið 1922 ákvað hann að leita gæfúnnar á
Islandi og réðist í gegnum Dansk Isl. Samfund
til landbúnaðarstarfa í Vopnafjörð, þar sem
ákvörðunarstaðurinn var bærinn Egilsstaðir.
Nielsen tók sér far með Gullfossi og hélt
síðan til Seyðisljarðar. Þar sté hann á land
og lagði á Fjarðarheiði með föggur sínar í
bastkistu á bakinu. Varla hefur hann grunað
þegar hann stóð á Fjarðarheiðarbrún og horfði
yfir Fljótsdalshérað að þar ætti hann eftir að
dvelja það sem eftir væri ævinnar.
Fyrsti áfangastaðurinn
Lífseig er sú saga að þegar Nielsen kom að
Egilsstöðum á Völlum hafi hann haldið sig
vera kominn á áfangastað. Þar vom þá fyrir
stuttu tekin við búi hjónin Sigríður Fanney
Jónsdóttirog Sveinn Jónsson. Þau voru bæði
menntuð í Danmörku og hafa efalaust haft
gaman af að ræða við þennan langt að komna
gest. Segir sagan að Sveini hafi litist svo vel
23