Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Síða 58

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Síða 58
Múlaþing og er tillaga útvarpsstjóra þess efnis samþykkt samhljóða. I henni eru lagðar línur fyrir starfsemina, m.a. að Inga Rósa verði forstöðu- og dagskrárgerðarmaður og fái með sér tæknimann og auglýsingafulltrúa í hlutastörfum. Námskeið verði haldin fyrir fréttaritara og dagskrárgerðarfólk á svæðinu. Utsendingar verði á dreifikerfi Rásar 2 og hraðað verði framkvæmdum við það svo það nái til alls svæðisins. Utsendingar hefjist að mánuði liðnum og útvarpað verði tvo daga í viku í hálftíma í senn (fímmtudaga og föstudaga frá kl. 18:30 og 19).5 Svæðisútvarp Austurlands hóf starfsemi sína 19. nóvember 1987. Fyrsti útsendingar- dagurinn fór á annan veg en ætlað var því vegna vonskuveðurs komust gestir ekki á staðinn, hvorki frá nágrannabyggðum né Reykjavík. I staðinn snerist útsendingin mestmegnis um veðrið sem geysaði. Má því segja að veðrið þennan dag hafi undirstrikað mikilvægi starfseminnar sem þama var verið að koma á fót, enda eitt af hlutverkum RUV að sinna öryggishlutverki í samfélaginu með dreifingu upplýsinga, t.d. í náttúrahamförum. Stofnun svæðisstöðvanna var ekki aðeins hugsuð til að styrkja ijölmiðlun og upplýsingastreymi í fjórðungnum heldur var þeim einnig ætlað „að styrkja Ríkisútvarpið í sessi í frjálsri samkeppni.“6 Um starfsemi Svæðisútvarps Austurlands segir í ársskýrslu Ríkisútvarpsins fyrir árið 1987: „Frá upphafi var dagskrá svæðisútvarpsins þannig upp byggð að byrjað var á fréttum og síðan voru viðtöl við fólk, gjaman um fréttatengt efni. Auglýsingatímar voru tveir, strax að loknum fréttalestri og skömmu fyrir lok útsendingar.“7 Fyrirmyndin að starfsemi Svæðisútvarps Austurlands var sótt til Svæðisútvarps 5 Ríkisútvarpið - skjalasafn. 2931. fundur útvarpsráðs, 20. október 1987. 6 Guðjón Friðriksson: Nýjustu fréttir! Saga jjölmiðlunar á íslandi frá upphafi til vorra daga, Iðunn, Reykjavík 2000, s. 284. 7 Ríkisútvarpið - skjalasafn. Ársskýrsla RÚV 1987, s. 26. Norðurlands og reynt var að hafa yfirbragð sem líkast Rás 2. Starfsmenn vom fj órir, allir í hlutastarfi nema Inga Rósa. Auglýsingaöflun gekk vel, stundum svo vel að hafna þurfti auglýsingum því beðið var um meira en rúmaðist innan tímamarka. T æpu ári eftir að starfsemi S væðisútvarpsins hófst var enn eftir að klára dreifikerfið svo útsendingar næðust um allan fjórðunginn (upp á vantaði Bakkaijörð, Djúpavog og Homafjörð auk nokkurra sveitabæja).8 í júlí 1990 stækkaði hlustunarsvæði Svæðisútvarpsins þegar Hornarijörður bættist við. Þeim sem náðu útsendingunum fjölgaði þá úr 10 þúsund í um 13 þúsund.9 Atta ámm síðar var þó ekki búið að koma útsendingum til alls svæðsins því enn náðu þær ekki til Bakkafjarðar og hluta A-Skaftafellssýslu.10 Kröfur um aukna þjónustu Þrýstingur á bætta þjónustu Ríkisútvarpsins á Austurlandi hafði verið töluverður í fjórðungnum um nokkurt skeið áður en fyrsti starfsmaðurinn var ráðinn árið 1985. Austfirskir sveitarstjómarmenn höfðu frá fyrsta áratug útsendinga Sjónvarps barist fyrir því að það næði sem fyrst til alls fjórðungsins. Smám saman fékkst aukin útbreiðsla og skilyrðin bötnuðu. Þá tóku sveitarstjómannenn að beina sjónum að annarri þjónustu RUV og voru þeir löngum þeirrar skoðunar að þar þyrfti að bæta úr. A aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) árið 1982 var samþykkt ályktun þar sem stofnun deildar RUV á Akureyri var fagnað og stjóm SSA falið að ræða við yfirstjóm RUV um stofnun landshlutaútvarps á Austurlandi. Þessari ályktun var svo fylgt eftir næstu ár. Eftir að Svæðisútvarpið var tekið til starfa tók SSA 8 Ríkisútvarpið - skjalasafii. 2963. fúndur útvarpsráðs, 12. ágúst 1988. 9 Ríkisútvarpið - skjalasafn. Ársskýrsla RÚV 1988, s. 18. 10 Ríkisútvarpið - skjalasafn. 3393. fúndur útvarpsráðs, 13. október 1998. 56
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.