Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Qupperneq 70
Múlaþing
hátt hlutfall af fréttatímum vikunnar engu
að síður. 10 pistlar fyrir útvarpsfréttir var
líka nokkuð algengt þegar mest lét en hvoru
tveggja gat farið langt niður þegar skortur
var á mannskap og því sem þótti fréttnæmt
á landsvísu. Það var reyndar aldrei
neinn skortur á því sem þótti fréttnæmt
á byggingatíma Kárahnjúkavirkjunar
og álversins við Reyðarfjörð. Allt sem
tengdist framkvæmdunum taldist í raun
fréttnæmt á landsvísu. Föst innslög voru
i Dægurmálaútvarp einu sinni i viku þegar
ég hóf störf og gátu orðið mun fleiri þegar
eftirspumin var sem mest um fféttatengd
efni. Við vorum enn fremur með fast
innslag í þættinum Samfélagið í nærmynd
á Rás 1 einu sinni í viku allan þann tíma
sem ég starfaði á útvarpinu.56
Asgrímur Ingi hóf störf hjá Svæðisútvarpinu
árið 2004. Þá lagði þáverandi forstöðumaður,
Bjöm Malmquist, sérstaka áherslu á nauðsyn
þess að vanda svæðisútsendingarnar og
láta þær ekki líða fyrir aukna eftirspurn
landsrásanna eftir efni. En samt sem áður
varð að leggja sig fram um að svara efltirspum
fréttastofanna eftir fréttum fyrir útvarp og
sjónvarp.57 Álagið var því mikið og hlutverk
Svæðisútvarpsins búið að taka breytingum
sem bæði áttu sér samfélagslegar skýringar
en voru einnig tilkomnar vegna þess að
Svæðisútvarpið hafði fest sig í sessi og sannað
sig við að standa undir þeim faglegu kröfum
sem til þess vom gerðar.
I samantekt sem Jóhann Hauksson (þá
forstöðumaður Svæðisútvarps Norðurlands
og yfirmaður Rásar 2) gerði árið 2004 kemur
fram að íjöldi innslaga svæðisstöðvanna
þriggja (á Akureyri, Isafírði og Egilsstöðum)
í dagskrá Rásar 1 og 2 var á bilinu 270-317
56 Spumingakönnun. Svar: Ásgrímur Ingi Amgrímsson, 1. október
2013.
57 Spumingakönnun. Svar: Ásgrímur Ingi Amgrímsson, 1. október
2013.
á mánuði.58 Innslögin vom misviðamikil en
ljóst er að þama er um að ræða umtalsverða
framleiðslu efnis sem hefur sett sterkan svip
á dagskrá landsrásanna.
Efnisöflun, tækniþróun og samkeppni
Fyrmm starfsmenn Svæðisútvarpsins vom
spurðir í spumingakönnuninni um frétta- og
dagskrárstefnu síns miðils. Inga Rósa segir
að fréttastefna þess hafi siglt milli þess að
vera hógvær og aðhaldssöm.
Það var haft að leiðarljósi að fátt
í fjórðungnum væri íbúum hans
óviðkomandi. Menning átti t.d. greiðan
aðgang að umfjöllun en við tókum líka
nokkuð hart t.d. á verslunum svæðisins
og gerðum verðkannanir sem hugnuðust
ekki öllum vel. Fréttir af aflabrögðum
og fiskvinnslu áttu mjög stóran sess, við
reyndum að gera sveitarstjórnarmálum
ítarleg skil sem og öðmm austfirskum
stjómmálum en annars var fyrst og fremst
lagt upp með það að fara sem víðast yfir
og koma sem flestu að.59
Haraldur Bjamason, sem starfaði með Ingu
Rósu frá 1988 og þar til hún lét af störfum
(1999) tekur í svipaðan streng en bætir við
áhersla hafí verið lögð á að afla frétta frá
fyrstu hendi en „láta ekki duga eitthvað „copy/
paste“ sem því miður er of algengt í dag.“60
Bæði Haraldur og Jóhann Hauksson telja að
fréttastefna Svæðisútvarpsins hafí á þeirra
tíð verið frekar hógvær sé litið til samtímans.
Af svörum við spurningakönnuninni
að dæma virðist fréttastefnan þó hafa
58 Bjartur Máni Sigurðsson og Ægir Þór Eysteinsson: „„Góðir
hlustendur, þetta er Utvarp Norðurlands.“ Svæðisútvarpið og
nærsamfélag“, Lokaverkefni í Qölmiðlafræði, Háskólinn á
Akureyri 2006, s. 44.
59 Spumingakönnun. Svar: Inga Rósa Þórðardóttir, 29. september
2013.
60 Spumingakönnun. Svar: Haraldur Bjamason, 30. september
2013.
68