Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Qupperneq 74
Múlaþing
einnig er nefnt að þar á milli hafi frekar verið
um að ræða samstarf en samkeppni. Vegna
eðlismunar á þessum miðlum var leikurinn
ójafn. Um samkeppnina við blöðin segir Agúst
Ólafsson (sem starfaði bæði fyrir Stöð 2 og
Svæðisútvarpið á tímabili sem rannsóknin nær
til) að aðstaða ljósvakamiðlanna hafí verið
sterk því daglegar útsendingar gáfu nokkra
yfirburði yfir svæðisblöðin sem gefín voru
út vikulega.76
Skipulagsbreytingar innan RÚV
í ársskýrslu RUV árið 2002 ræðir þáverandi
útvarpsstjóri, Markús Örn Antonsson, um
þróun starfsemi RÚV á landsbyggðinni.
Hann byrjar að ræða um flutning yfirstjórnar
Rásar 2 til Akureyrar (árið 2001) sem og
yfírumsjón með rekstri svæðisstöðvanna
ásamt fréttaöflun og dagskrárgerð. „Efling
RÚV úti á landsbyggðinni er í samræmi
við yfirlýst ætlunarverk þess og markmið.
Þau mótast af byggðastefnu stjómvalda og
almennri umræðu í samfélaginu. Þar ber
mjög hátt ýmis áform og viðleitni til að auka
íjölbreytni í menningarlífí landsbyggðarinnar,
sem Ríkisútvarpið á vissulega að vera virkur
þátttakandi í.“ Ljóst er af orðum útvarpsstjóra
að hann lítur á starfsemina á Akureyri sem
miðpunkt starfsemi RÚV á landsbyggðinni, en
hann undirstrikar líka mikilvægi starfseminnar
á Egilsstöðum og ísafírði. „Umsvif RÚV úti á
landi snemst til skamms tíma fyrst og fremst
um svæðisútvarpsrekstur í þágu viðkomandi
landshluta... Við flutning dagskrárstjórnar
Rásar 2 til Akureyrar em bundnar þær vonir,
að alhliða umljöllun um málefni fólks í
öllum landshlutum eigi eftir að aukast hjá
RÚV.“77 Ekki var þó samstaða í útvarpsráði
um flutning yfírstjómar Rásar 2 norður, en
minnihluta ráðsins þótti bæði vera farið of
hratt í málið og markmiðin með flutningnum
76 Spumingakönnun. Svar: Ágúst Ólafsson, 26. september 2013.
77 Ríkisútvarpið - skjalasafn. Ársskýrsla RÚV 2002, s. 4-5.
sjálfum óljós. í fundargerð útvarpsráðs
kemur fram að tildrög málsins voru óskir
menntamálaráðuneytisins þess efnis að „með
skjótum hætti verði lagt mat á það innan
Ríkisútvarpsins, hvort ekki megi breyta Rás
2 í miðstöð svæðisútvarpa og flytja starfsemi
hennar til Akureyrar.“78 Efasemdir vom um
gagnsemi flutningsins íyrir svæðisstöðvamar
og sá einn útvarpsráðsmaður ástæðu til að taka
undir orð forstöðumanna svæðisstöðvanna að
hvað þær snerti væri aðalatriði málsins ekki
að flytja Rás 2 norður heldur að auka hlut
svæðisstöðvanna í dagskrá rásarinnar.
í fyrstu ársskýrslu RÚV eftir að stofnun-
inni var breytt í opinbert hlutafélag (árið
2007) eru starfsemi svæðisstöðvanna gerð
skil í stuttu máli. Þær vom þá fjórar en
fram kemur að stöðin á Suðurlandi hafí
aldrei náð sama flugi og hinar þrjár sem
allar njóti verulegra vinsælda. Því var
Suðurlandsstöðin lögð niður og svæðinu
sinnt með fféttariturum í Vestmannaeyjum,
á Selfossi og Höfn. Síðan segir: „Öðm máli
gegnir um stöðvarnar á ísafírði, Akureyri
og Egilsstöðum. Þær standa föstum fótum í
samfélagi sínu og svæðisbundnar sendingar
njóta töluverðra vinsælda, auk þess sem
staðsetning svæðisstöðvanna auðveldar
Ríkisútvarpinu efnisöflun á stóm og oft á
tíðum torfæru landi.“79 Ari síðar er starfsemi
svæðisstöðvanna gerð stuttlega skil í
ársskýrslu, í undirkafla í kafla sem fjallar
um starfsemi fréttastofunnar. Þar kemur fram
að þrjár svæðisstöðvar hafi verið starfræktar
á tímabilinu. „Svæðisbundnar sendingar nutu
áfram vinsælda en vaxandi áhersla hefur þó
verið lögð á að svæðisstöðvamar skili efni á
landsrásir útvarps og sjónvarps, auk þess að
78 Ríkisútvarpið - skjalasafn. 3488. fundur útvarpsráðs, 6. nóvember
2001.
79 Vef. „Ársskýrsla Ríkisútvarpsins ohf., 1. apríl til 31. ágúst 2007“,
s. 18. http://www.ruv.is/flles/skjol/RUV_Arsskyrsla_2008_
netid_3.pdf, [Sótt 21.12. 2013].
72