Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 86

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 86
Múlaþing Við það varð að sitja, þá var farið, þetta stóð í sambandi við skipaferðir, hann fékk sér upplýsingar um þær á Seyðisfírði, og kæmum við ekki með rjúpuna áður en skipið kom, var ekki um sölu að tala, eða þá í mesta lagi fyrir 15 aura. Einu sinni sem oftar þegar við komum úr ferð, og áttum að fara aftur á ákveðnum tíma, snjóaði alltaf í ijöll tímann sem við höfðum til að veiða, en við fengum dálítið af rjúpu, en nú var ekki neitt útlit fyrir að hægt væri að koma henni á markað. Stuttu áður en við áttum að fara, gerði hlákublota svo það auðnaðist í byggð, og randar upp eftir fjöllum, en ekkert útlit fyrir að hægt væri að leggja til Heiðar með klyfjahesta. Þá frétti Nikulás að maður úr Seyðisfirði, Einar Sölvason í Fjarðarseli, hafi komið með lausan hest uppyfír Heiði og rakið sig eftir ánni, Vatninu og Vatnshæðum, og Nikulás hélt að við myndum þá komast með okkar rjúpur, úr því hefði verið farið með hest yfir. Við lögðum svo af stað seint á degi í góðu veðri og þriðji maður með okkur, Asmundur Jónsson, Grófargerði, ég var í Tunghaga þegar þessi ferð var farin. Héldum við út Velli sem leið liggur, en þegar við komum að Höfða fór að drífa í logni, og ekki álitlegt að leggja til Heiðarinnar, samt héldum við áfram út í Egilsstaði, þá var komið fram yfir háttatíma og allt fólk í svefni, drífan var sú sama og mokaði niður snjó. Við tókum svo ofan af hestunum og gáfum þeim, svo fórum við í fjósið sem var stórt og rúmgott og nægir heypokar til að sitja á, og leið okkur þar vel um nóttina. Um morguninn var komið gott veður, en lognsnjór í miðjan legg yfir allt, skýjað loft en þoka á fjöllum. Við drukkum morgunkaffið á Egilsstöðum og lögðum svo af stað. Þegar við fórum upp Miðhúsatúnið kom Sveinn bóndi Amason út á túngarðinn og spurði hvað við væmm að fara, og sögðum við honum það. Sveinn var gætinn og hygginn maður, og sá að það var lítið vit í því að leggja til Heiðarinnar í þessu útliti, og sagði: „Þú ferð ekki á Seyðisfjörð í dag Nikulás.“ Nikulás svarar: „Ætli það verði þó ekki reynt.“ Við héldum svo áfram til fjalls. Veðrið var milt og ffostlaust, við höfðum búist við að verða fljótir upp, gætum við rakið okkur á auðum röndum, en nú var allt hulið í mjöll og hafði bólstrað á röndunum. Það hlóð í hófmn svo hestamir runnu til baka og lentu oft í gamla snjóinn, og þar voru umbrot. Við vomm afar lengi að komast upp fjallið, og þegar þangað kom var hin þyngsta færð, í hné og milli hnés og kviðar, en ekki umbrot. Veðrið var milt, þoka með lítilli snjóhreytu, við héldum svo austur heiðina að Sigurðarmel, en gekk afar seint. Skammt fýrir austan melinn fómm við yfir í Vatnshæðir og tókum símann, bjuggumst þar við betri færð en því miður var það ekki, en mun betra þó að fylgja símanum. Nú fór að hvessa og auka snjókomuna, en áfram var haldið þó seint gengi. Þegar við þóttumst komnir austur undir Vatn, fórum við frá símanum til að komast á vatnið, bjuggumst þar við betri færð undanhallt út úr hæðunum niður að vatninu, en nú sáum við ekkert frá okkur. Við rákumst þar á lítinn melkoll upp úr snjónum, nú var dagur þrotinn, allir hestar uppgefnir, kominn blindbylur og Nikulás fárveikur. Eg fleygði yfirfrakkanum mínum ofan á hann, svo tókum við ofan af hestunum og hlóðum skjólgarð úr burðinum sem voru kassar. Þá var nú að hugsa um hestana, að hressa þá, en veðurofsinn var svo mikill að heyið fauk jafnóðum og maður lét það á fönnina. Ég tók það ráð að ganga með heytuggu á milli þeirra og láta þá bíta í, ég sá þá að þeir hresstust furðu fljótt. Og nú þurfti að hugsa um veika manninn, því ættum við að berast fyrir þama þurfti það mikilla umbóta við, en þegar ég fór að athuga um hann, sprettur hann upp og segir: „Við drepumst allir ef við verðum hér í nótt.“ Tekur einn hestinn og teymir á undan og skipar okkur að koma 84
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.