Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Qupperneq 91
Ritfregnir
Loðmundarfj örður
Minningar, myndir, sögur & ljóð
Höfundur: Anna Kristín Magnúsdóttir.
Útgefandi: Anna Kristín Magnúsdóttir, Eiðum, 2011.
Hönnun ogprentun: Héraðsprent, Egilsstöðum. (180 bls.)
Loðmundarfjörður er sérkennileg bók, a.m.k. á austfirskan mælikvarða. Þetta er myndabók,
með myndum úr Loðmundarfirði, aðallega af náttúrunni, jafnt því stóra sem smáa,
því fátt er nú orðið sýnilegra mannvirkja í þessum fírði, þar sem ekki hefur verið föst
búseta í hálfa öld. Langflestar myndir hefur Anna Kristín tekið, ásamt Evu Sædísi, bróðurdóttur
sinni, árin 2009-10, og til þess fór hún „pílagrímsferð" úr Seyðisfírði yfír Hjálmárdalsheiði,
sem hún hafði þá ekki farið í 40 ár.
„Eg ferðaðist ein á hestunum, með hundinn minn, og markmiðið með ferðinni var að afla
mynda og efnis í bókina, og upplifa gamlar minningar á heiðinni. Eg var í sæluvímu alla
leiðina, svo frábærlega leið mér. I einveru minni og nálægð við náttúruna barst mér margt
undarlegt fyrir sjónir, og mér fannst ég skynja stórkostlega fegurðina og ijölbreytileikann í
umhverfínu á nýjan hátt, ásamt dulúð og hlýju.“
Myndimar tala sínu þögla máli um fegurðina. Aðeins helstu fjöll em nafngreind, og
nokkrir sögustaðir og blóm, en oft em þær aðeins nefndar eftir hughrifum höfundar. Áhersla
er greinilega á listrænt gildi myndanna, sumar eru ekki vel skýrar og jafnvel teknar í þoku eins
og tilhlýðilegt er á Austíjörðum. Þá eru í bókinni fáein málverk höfundar úr Loðmundarfírði.
Textinn er aðallega gamlar þjóðsögur og sagnir, sem flestar eru endursagðar af Evu
Hjálmarsdóttur rithöfundi frá Stakkahlíð, auk stutts formála og eftirmála höfundar, og kvæðis
eftir Sólveigu Björnsdóttur í Laufási. Þessir stuttu textar hafa allir verið þýddir á þrjú tungumál:
ensku, sænsku og þýsku, og gefúr það bókinni fjölþjóðlegt gildi. Þess má geta að nokkrir
erlendir listamenn og fúrðufuglar hafa leitað að sjálfum sér í einveru Loðmundarfjarðar, sbr.
t.d. Gletting 1 (2), 1991.
Hönnun bókarinnar er með ágætum, þó að sumsstaðar fínnist mér vanta skil milli mynda
á sömu síðu eða opnu, svo þær renna of mikið saman og trufla hver aðra.
Anna Kristín ólst upp í Stakkahlíð, er síðastur bæja fór í eyði 1967, þegar foreldrar hennar,
Sigríður Ásta Stefánsdóttir frá Stakkahlíð og Magnús Sigurðsson frá Miðhúsum á Héraði
fluttu á Seyðisijörð, aðallega vegna erfíðra samgangna og lítilla möguleika á skólagöngu
yngri systkina.
89