Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 112

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 112
Múlaþing Baðstofulífíð Eg ólst upp í fjósbaðstofu. Þær voru þá sums staðar á Austurlandi. Kýrnar voru á neðri hæð en fólkið á loftinu fyrir ofan. Þær voru hlýjar og viðfeldnar og þama hafði maður náið félag við skepnumar, því oft voru þama lömb, hrútar og hestar einnig. Fjóslyktin þótti mér góð og oft var fjósið athvarf, þar var leikið í myrkrinu og sagðar sögur. Þar strauk maður og klappaði skepnunum á vetrarkvöldum. Þar lærði ég talsvert í kveri og biblíusögum og þá lá ég í básnum fyrir ofan einhverja kúna. Ég var 16 ára þegar baðstofan var rifín 1916 og ég saknaði hennar afskaplega. Til þess aldurs hafði mér aldrei orðið misdægurt og bræður mínir kenndu sér þar heldur ekki meins. Við fengum ekki svo mikið sem kvef. Enda sagði Ingólfur Gíslason, læknir að í kúahlandinu væri ammoníak sem dræpi allar bakteríur. Bæði þama og í baðstofúnni var oft gaman að vera. A vetrarkvöldvökunni vom oft lesnar sögur og rætt um þjóðleg fræði, ættir manna og málefni, voru foreldrar mínir ræðnir og einkum ef gestir komu. Þama laukst upp fýrir mér heimur ævintýra og sagna. Ævintýrin byrjuðu: Einu sinni var, kóngur og drottning í ríki sínu, karl og kerling í koti sínu. Karl átti son en kóngur átti dóttur og þá var að ná í kóngsdótturina og það því fremur sem hún var ekki í álögum og í trölla höndum. Þetta hafði slík áhrif á mig, kóngsdóttirin sem ég vildi ná í var menntunin, þjónustan við allt hið góða og fagra. En þetta var í álögum villtra tíma og spillingar. I gömlu baðstofunni lærði ég mín guðlegu fræði, kvæði og íslendingasögur við ljós í lágu hreysi í 30 ára gamalli baðstofú sem lak og hrikti í. En maður var sæll. Því að innra brann glóð hugsjóna og vonar, því allir vom kynntir sem yljuðu vel. Þegar svo voraði og sumraði skreið maður út og þá kunni maður að meta sólina og vorið með sinn blessaða lífgaða varma og maður gladdist óumræðilega við að sjá vöxt jurtanna og gróðurinn á grænum teignum. Þá var að vinna af kappi. Sauðburðurinn Sú var reglan að passa vel ærnar um sauðburðinn, halda þeim saman og vakta þær. Því að víðáttan var svo mikil að ógerlegt hefði verið að fást við þetta án þess að halda ánum saman. En þetta kostaði mikið erfiði, því oft var féð margt alls yfír bæinn. Daglega þurfti maður að smala, ganga með hættunum, sem margar em í landareigninni. Og oft kom það fyrir að maður varð að fara dauðþreyttur eftir vakt og labb dagsins, undir nóttina fram um fjöll og fírnindi til að leita að ám, sem höfðu hlaupið til heiðar. Faðir minn vildi vita um hverja á sem átti að fara að bera. Hann vildi hjálpa þeim og það var reglan að láta ánum í té Ijósmóðurþjónustu. Það var þungt að fara að heiman að kvöldlagi syfjaður og þreyttur með þrá til beddans og rangla fram um allar heiðar. Stundum settist maður þá niður og sofnaði og þá var koddi minn steinn, maður sofnaði undir miskunnarvæng Guðs úti í náttúrunni. Hve mjúkt er í ljósgrænni laut, sönglaði ég þá oft er ég vaknaði aftur. En þetta var nú allt til blessunar að lifa við árin mennta og hugsjóna á vetrum en vinna á sumrin. Þannig ófst saman í uppeldinu draumur og dáð og þetta var gott uppeldi. Ennþá leggur inn í hug mér yl frá bemsku, glóðum og dáðum. Mannýgu nautin og Jón Eyjólfsson Snemma í bemsku var ég viðkvæmur fýrir því sem átti bágt. Ein af fýrstu minningum mínum var um seinasta förumanninn þar eystra er hét Jón Eyjólfsson. Kom hann ofit og var ég að reyna að túlka mál hans, þótti honum vænt um mig. Jón var ákaflega hræddur við nautin sem vanalega voru mannýg. Gengu þau á Egilsstaðaafrétt á sumrin, fyrir innan gjá í afréttinum og var hlaðið í gjána á milli klettanna. En stundum komu nautin heim, 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.