Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Qupperneq 138
Múlaþing
Teikning Vigfúsar afHalldóri Guttormssyni áArnheiðar-
stöðum, líklega eftir Ijósmynd. Halldór var smiður og
útskurðarmeistari, mikilvirkur ífélagsmálum Fljótsdœla
um og eftir aldamótin 1900.
m.a. nokkrar myndir úr Fljótsdal í grein um
„Búskap í Fljótsdal á 19. öld,“ í Múlaþingi
29, 2002. Stækkanir í 20 x 14 sm eru til af
um 20 myndum í Fléraðsskjalasafninu, gerðar
fyrir sýninguna á Klaustri.
Vigfús tók mynd af Jóni Olafssyni,
ömmubróður sínum á Skeggjastöðum, og
Bergljótu konu hans (langafa mínum og
langömmu) þau voru þá bæði orðin mjög
gömul, einnig teiknaði hann stóra mynd af
Jóni. Ljósmyndin var stækkuð og hékk í
ramma á Skeggjastaðabæjum þegar ég man
fyrst eftir.
Handrita- og tcikningasafn: Arið 1988
fór höfundur þessa pistils að grennslast fyrir
um handrit, teikningar og ljósmyndir Vigfusar,
og fékk Sigurð Óskar Pálsson héraðsskjalavörð
og Þuríði Skeggjadóttur í Geitagerði til liðs við
sig. Haft var samband við Sigurð Vigfússon,
sem kvaðst hafa ýmis handrit föður síns, en
eitthvað lítið af teikningum hans. Sagði þær
geta verið hjá Halldóri Péturssyni, sem birt
hafði mynd af Halldóri Hómer á kápu einnar
bókar sinnar. Síðar kom Guðrún Kristinsdóttir,
forstöðukona Safnastofnunar Austurlands að
málinu, hún heimsótti Sigurð 1990 eða 1991,
og fékk hjá honum 4 handskrifaðar bækur, sem
hann gaf Minjasafninu. Þann 13. okt. 1992
heimsótti ég Sigurð á Auðbrekku í Kópavogi
og fékk að skoða handritasafn Vigfúsar, sem
var meira að vöxtum en mig hafði grunað.
Samdist þá svo með okkur að hann myndi
afhenda Héraðsskjalasafni Austfirðinga á
Egilsstöðum þetta handritasafn föður síns og
fékk ég að taka það með mér austur. Hef ég
víst aldrei verið með verðmætari farangur.
Ég ritaði Sigurði þakkarbréf 8. nóv. 1992,
og segi þar ma.:
„Sæll frændi góður, og þakka þér fyrir
síðast. Ég var mjög ánægður með fenginn,
og ætla að láta þig vita, að hann er nú
kominnheilu og höldnu á Héraðsskjalasafn
Austfirðinga á Egilsstöðum. Ég fór
sjálfur yfir allt safnið, raðaði bréfum eftir
bréfriturum í stafrófsröð, og skrifaði miða
utan á allar dagbækur og vasabækur, þar
sem innihald þeirra var tilgreint í stórum
dráttum. Annars er efni þeirra vanalega
svo blandað, að það er erfitt að flokka
þær. Samt eru nokkrar bækur aðallega eða
eingöngu með teikningum, og eru þær
flokkaðar sér. Ég hefi líka ljósritað allar
teikningamar, svo þær em nú til í nokkrum
eintökum, og em ljósritin geymd hjá mér.
Efþú hefur áhuga á að fá eintök af þeim,
get ég sent þér þau, og þessi ljósrit geta
verið allt eins góð og frummyndimar, auk
þess stækkaði ég flestar þeirra um leið.
Þama voru líka nokkur gömul handrit,
136