Heilsuvernd - 01.04.1957, Side 6
HEILSUVERND
ÍUíur Ragnarsson læknir
Ráöinn hefur verið nýr læknir
að Heilsu-hæli N.L.F.Í. í Hvera-
gerði, Úlfur Ragnarsson, síðast
héraðslæknir á Kirkjubæjarhér-
aði. — Úlfur er fæddur 29. sept-
ember 1923. Hann á til góðra að
telja, jívi að hann er sonur Ragn-
ars Ásgeirssonar, garðyrkjuráðu-
nauts í Hveragerði, og konu
lians, frú Grethe Ásgeirsson. Tók
hann læknapróf hér við Háskól-
ann sumarið 1950 með I. einkunn,
166 st. Sama ár var hann ráðinn
aðstoðarlæknir héraðslæknisins í
Egilstaðahéraði, frá 1. júni ]>að
ár til maíloka 1951, en þá gerð-
ist hann námskandídat i Lands-
spitalanum. 13. október 1951 var
hann settur héraðslæknir, er
hann hafði lokið almennu framhaldsnámi og hlotið lækningaleyfi.
Var hann svo héraðslæknir í Kirkjubæjarhéraði, unz liann lét af
því starfi nú um síðustu áramót og tók að sér forstöðu Heilsu-
hælis N.L.F.Í. — Kvæntur er Úlfur Ástu Guðvarðardóttur, ætt-
aðri úr Fljótum norður, og eiga þau 4 dætur.
Það var mikið happ fyrir N.L.F.Í. að fá þennan vinsæla og ágæta
mann að hæli sínu. Hann hefur lengi haft samúð með starfi fé-
lagsins og kynnt sér kenningar þess, enda er liann hleypidóma-
laus maður og oninn fyrir öllum jákvæðum nýjungum á sviði
læknisfræði og heilbrigðismála, án þess hó að vera nokkur veifi-
skati. Mun hann verða farsæll i starfi á vegum náttúrulækninga-
stefnunnar, ekki síður en i þjónustu ríkisins sem héraðslæknir.
Ekki getur hjá þvi farið, að fleiri og fleiri læknar fari að kynna
sér kenningar náttúrulækningastefnunnar og sinna meira og
meira þeim þætti heilbrigðismálanna, sem i raun og veru er þýð-
ingarmestur — heilsuverndinni. —
Úlfs læknis Ragnarssonar biður stórt hlutverk. Ég er ekki i
neinum vafa um, að hann mun reynast því vaxinn.
Gretar Fells.