Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 26

Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 26
HEILSUVERND Elling Tjgnnéland: Engan frið að finna. Eftirfarandi grein birtist í norska blaðinu „Hordaland" 29. ág. s.l. Því máli, sem hún víkur að ætti hvert rit að Ijá rúm i dálkum sínum og hver maður rúm í huga sínum. Tómlætisþögnin, sem yfir þvi hvílir er uggvænleg. Á því veltur þó líf heimsins. Fyrir aðeins sex vikum fór mikil loftvarnaræfing fram í New York. 1 hinni opinberu tilkynningu var frá því skýrt, stutt og laggott, að loftárásin (atómsprengjuárás) á mill- jónaborgina myndi hafa kostað 4,4 milljónir manna lífið, 1,7 milljón hefði særst, 1,5 milljónir hefðu sloppið óskadd- aðar, en 225 þúsundum hefði tekizt að forða sér úr borg- inni, áður en sprengjan féll. I lok skýrslunnar var þess getið, að talið væri að þessi æfing hefði tekizt mjög vel. Það er gömul reynsla, að alþjóð manna á bágt með að skilja til fulls stóru tölurnar í venjulegum blaðafyrirsögn- um. Og þegar þær eru prentaðar með smáu letri skilja menn hreint ekki neitt. Blöðin eru semsagt vön að gefa það til kynna, ef eitthvað er sérlega fréttnæmt. En það fréttnæmasta við slíka skýrslu er, að hún er svo sorglega ófullkomin. — Það er t. d. ekki minnst einu orði á börnin, sem fæðast myndu af þvi fólki, sem undan hefði komizt á einn eða annan hátt. Það er til skýrsla, sem hefði getað hjálpað yfirvöldunum til að víkka út myndina. Það eru ljósmæðurnar í Nagasaki, sem gert hafa þá skýrslu. Það má finna hana prentaða með smáletri í tímaritum, og ég minnist þess ekki, að hafa séð hana birta með neinum risafyrirsögnum í dag- blöðunum. — Nagasaki-skýrslan frá 1944 er á þessa leið: Frá því atómsprengjan féll á Nagasaki hafa 30.000 börn fæðst í heiminn af þeim foreldrum sem eftir lifðu. Af

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.