Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 18
HEILSUVERND
Gullöld stólanna
Blómaskeið setmenningar er upprunnið. Ekki líður á
löngu áður en mönnum verður gefinn kostur á að vinna
öll verk í sæti sínu. Áður fyr var staðið við slátt. Nú er
setið. Þá stóðu menn líka við orð sín. Nú veit ég ekki
hvort heldur er legið eða setið. Menn sitja í bílum og
flugvélum, á dráttarvélum, skurðgröfum, stólum, bekkj-
um, kollum og hver á annars hnjám, ef svo vill verkast.
Menn sitja hreint á öllu nema sjálfum sér.
„Sveltur sitjandi kráka ...“ sögðu menn fyrrum. Við
lifum á öid, þegar gömul speki glatar merkingu sinni. Ef
þróunarkenningin hefur ekki einnig glatað gildi sínu, leik-
ur lítill vafi á, hvaða líkamshluti nái mestum þroska í
framtíðinni. Við skyldum þó ekki vera að reka botninn í
þróunarferil mannkynsins ?
Setur og hreyfingaleysi geta haft uggvænleg áhrif á
heilsu manna. Iðjulausir vöðvar tapa þrótti og þoli. Deyfð
og drungi leggst yfir líkama og sál. Þetta vita skákmenn-
irnir. Líkamshreyfing er liður í þjálfun þeirra, því að þeir
hafa rekið sig á að án hennar nýtist ekki kunnátta þeirra
til hins ýtrasta.
Margir góðir drengir hafa fallið í valinn um aldur fram
hin síðari ár fyrir sjúkdómi, sem nefndur er kransæða-
kölkun í hjarta. Líkur benda til, að hreyfingaleysi eigi
drjúgan þátt í þeim hörmungum. f landi bílanna, Banda-
ríkjunum, er sjúkdómur þessi meðal algengustu dánar-
meina og færist þó enn í aukana. Margir gætu bætt ár-
um við ævi sína, ef þeir gengju til vinnu sinnar í stað þess
að aka í bíl. Framháld af bls. ll^.