Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 25
HEILSUVERND
21
veldu lífi? Þau drógu þó sannarlega ekki af sér við verkin.
Við skulum lika athuga ævi Edisons. Kannske lestu
þessi orð við ljósið, sem hann færði heiminum, auk fjölda
annarra uppfinninga. Kom allt þetta upp i hendurnar á
honum með haegu móti? Síður en svo. Nei, hann vann
sleitulaust frá því er hann var blaðadrengur í járnbrautar-
lest til dauðadags á níræðisaldri. Hann vann þrotlaust í
sjötíu ár og lét ekki auðinn tæla sig til letilífs.
Ætlir þú að sigra og koma einhverju í verk, sem hefuí
varanlegt gildi, verðurðu að gera þér ljóst, að það kostar
erfiði og verður ekki komið í kring án þrautseigju. Þú
verður því að efla viljann, og búa þig þannig undir að mæta
þeim örðugleikum, er verða á vegi þínum.
Menn og konur með fullri greind ættu ekki að leita auð-
veldrar ævi heldur auðugrar ævi. Það líf er auðugt, sem
notað er til nytsamra starfa. Menn verða að temja sér að
gefa meira en þeir þiggja og liggja aldrei á liði sínu.
Þetta er erfið lexía mannlegum mönnum. 1 eðli okkar
flestra er harla grunnt á letidýrinu.
(Þýtt úr Physical Culture).