Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 36
HEILSUVERND
yiáiiúrulœkningafélag Tícijkfavíkur
Aðalfundur var haldinn 28. febrúar s.l. I félaginu eru
nú 1088 manns. Félagið hélt matreiðslunámskeið s.l. haust,
sóttu það um 80 konur. Samþykkt var að félagið keypti
skuldabréf af Náttúrulækningafélagi Islands vegna bygg-
ingaframkvæmda á heilsuhælinu í Hveragerði, fyrir allt
að 20 þús. krónur. Þá var samþykkt að skora á stjórn
N.L.F.I. að vinna að því að tollar af nýjum innfluttum
ávöxtum og grænmeti verði lækkaðir til mikilla muna, og
að þær vörur fáist hér árið um kring. — I stjórn voru
kosin: Frú Steinunn Magnúsdóttir, formaður. Meðstjórn-
endur: Klemens Þorleifsson, Guðrún Árnadóttir, Svava
Fells og Sigurjón Danívalsson. I varastjórn voru kosin:
Kjartan Þorgilsson, Katrín Þórarinsdóttir og Sigríður Ás-
mundsdóttir. Endurskoðendur: Þórður Halldórsson og
Dagbjartur Gíslason.
<o>
Náttúrulækningafélagið Þörf í Hafnarfirði hélt aðal-
fund sinn 7. marz. I stjórn voru kosin: Anna Eiríksdóttir
form. Meðstjórnendur: Jón Matthísen, Þorsteinn Björnsson,
Bergþóra Guðmundsdóttir og Árni Gunnlaugsson. Til vara
voru kosin: Arinbjörn Guðjónsson, Ingibjörg Jónsdóttir og
Anna Jónsdóttir.
Þá flutti Jónas Kristjánsson læknir fróðlegt og gott er-
indi og svaraði fyrirspurnum að loknum flutningi. Var þvi
næst sezt að rausnarlegum veitingum, sem stjórnin veitti
fundargestum. Að lokum var sýnd kvikmynd.
<o>