Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 33
HEILSUVERND
29
ostinum blandað í og að siðustu stífbeyttum hvítunum. — Vítamon
sett í eftir bragði og jafningnum hellt yfir blómkálið i mótinu.
Bakaður í vel heitum ofni, bar til bann hefur lyft sér vel og er
gulbrúnn að lit. — Borðaður með hrærðu smjöri eða tómatsósu
og hráum grænmetissalötum. í búðinginn má nota hraðfryst
blómkál og hvítkál.
Fjallagrasam jólk:
l%líter mjólk, ca. Vi matsk. púðursykur, 2 hnefar fjallagrös,
Vi liter vatn, 1 teskeið vítamon.
Grösin hreinsuð í köldu vatni, tínd vel. Vatninu blandað i mjólk-
ina, hitað. Grösin sett i mjólkina, þegar hún er komin að suðu,
látin sjóða 1—2 mínútur, tekin af, brögðuð til og potturinn síðan
tekinn af og lokað, látin standa i 5 mín. áður en borðuð er. Nota
má klíð i súpuna, ef vill.
K r ú s k a : •
3 bollar af kurluðum höfrum lagðir í bleyti í 1 líter af vatni
og þar hjá 1 bolli af rúsínum, suðan látin koma unp og soðið í
2 mínútur. Þá er klíði og hveitikími blandað saman við, og pott-
urinn byrgður þar til notað er.
Grænmetissúpa:.
1 laukur, 4 gulrætur, 100 gr. hvítkál, Vi líter vatn, Vítamon,
Vi se.ljurót eða seljurótarblöð, 2 kartöflur, 4 matskeiðar matar-
olía, Vi dl. rjómi.
Grænmetið skorið í strimla eða bita (gott að rífa það á gúrku-
hefli í hrærivél), og soðið í olíunni í þykkbotnuðum potti, þar
til það fer að sjatna, en má ekki brúnast. Sjóðandi vatninu faellt
á og látið sjóða í 10 mín. Kryddað með vítamon og þeyttur rjóm-
inn settur út í, um leið og hún er borin fram eða skammtaður
á hvern disk. Gott er að klippa steinselju i súpuna eftir að hún
hefur verið tckin af.
Baunabuff:
í buffið iná nota hvaða baunategund sem er, s. s. grænar baunir,
linsur eða allar tegundirnar saman.
3 bollar snöggsoðnar baunir, 7 meðalstórar snöggsoðnar kart-
öflur, 1 egg, 1 matsk. kartöfliimjöl, ef þarf vítamon.
Baunirnar og kartöflurnar hakkaðar, kartöflumjöli bætt i, ef
deigið er of blautt, eggið slegið sundur og blandað í deigið. Hrært,
þar til það er samfellt. Gott er að setja i deigið saxað grænkál,
klippta steinselju eða annað grænt. Hnoðað í lengju, sem skipt er
í jafna bita, mótað milli liandanna i buffkökur og steikt Ijósbrúnt