Heilsuvernd - 01.04.1957, Blaðsíða 31
HEILSUVERND
27
Margar húsmæður hafa fært í tal að æskilegt væri að fá birtar
í Heiisuvernd uppskriftir að þeim mat, sem á borðum er í heiísu-
hæli N.L.F.Í. i Hveragerði.
Viljum vér gjarnan verða við þeim óskum og birtum þvi hér
allmargar uppskriftir, sem notaðar voru á matreiðslunámskeiði,
sem haldið var á vegum N.L.F.R. á síðastliðnu hausti.
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir:
UPPSKRIFTIR
að nokkrum daglegum réttum heilsuhælisins í Hveragerði.
Salat með rifsberjum:
Rifsberjum er blandað í rifnar gulrófur ásamt dálitlu af súr-
mjólk og púðursykri. Rifsber má ávallt nota i staðinn fyrir sítrón-
ur í salöt o. fl. og þau geymast liraðfryst allt árið.
Hvítkálssalat með rjóma:
Hvítkálið er skorið í örþunna strimla og blandað saman við
það smáskornum sveskjum, púðursykri og þeyttum rjóma (sítrónu-
safa ef vill). í staðinn fyrir sveskjur má nota blandaða ávexti,
og er drýgra að leggja þá í bleyti yfir nótt.
Gulrótasalat:
Gulræturnar eru rifnar fínt, kryddaðar með sitrónusafa og
púðursykri og rúsinum blandað saman við. í stað sitrónusafans
má nota venjulegan ávaxtasafa.
Grænkálssalat:
Grænkálið er saxað smátt og blandað saman við rifnum ostí
og söxuðum rúsínum. Þetta er hrært út í þunnt skyr og borið
fram með þeyttum rjóma.
Tómatgúrkusalat:
Tómatar og gúrkur eru skorin i smábita, krydduð með púður-
sykri og sítrónusafa. Gott er að setja söxuð seljurótarblöð eða
klipptan graslauk í salatið.