Heilsuvernd - 01.04.1957, Page 20

Heilsuvernd - 01.04.1957, Page 20
HEILSUVERND Guðfinna Þorsteinsdóttir: Að sigrast á sfálfam sér. Gömul kona. sem fóstrað liafði nokkur vandalaus börn um lengri eða skemmri tíma, var spurð að því, hvort ekki væri vanda- samt að fóstra börn úr ýmsum áttum, frá alla vega heimilum, móluð af sundurleitustu áhrifum. Gamla konan gaf ekki beinlínis neitt út á það, 'heldur gegndi með frásögn, sein var eitthvað á þessa leið: Einu sinni tókum við sex eða sjö ára stúlkubarn tima úr vetri, sem varð víst flestum á bænum undrunarefni. Hún var svo geð- góð að furðu sætti. Heimilisfólk mitt var sumt nokkuð stríðið, og þýddi mér lítið um það að vanda. Reyndi það oft að reita hana til reiði með ýmis konar ertni í fyrstu, sem oft gat orðið býsna rætin og meinleg. En það var alltaf eins og stökkt væri vatni á gæs, ekkert virtist hrína á henni, hversu sem leitazt var við. Fylgdist ég vel með öllu, albúin þess að skakka leikinn, ef með þyrfti. En það var eins og sú litla hefði lag á að verjast, hógværum orðum og stakri rósemi, sem aldrei raskaðist. Galt hún aldrei líku líkt, réðst ekki á móti, varðist aðeins, án allra sár- yrða, hvað þá að 'hún talaði ljótt. Svo var það einu sinni, að þessi grái leikur gekk langt úr hófi. Takmarkið var, að leiða það ótvírætt í ljós, að hún gæti fokið upp, orðið báivond, jafnvel misst alla stjórn á sér. Flestar þessar árásir hefðu orðið fullorðnum ofraun. Svo var farið að senda henni tóninn úr sætunum: Nú er hún orðin reiðj Já, vissi ég ekki. Sjáðu bara, hún er orðin orðlaus af bræði! Mér leið afar illa, af því að hafa ekki afstýrt þessu i tíma. — En hverju haldið þið að barnið hafi svarað? Enginn myndi geta hins rétta svars, og því segi ég það orðrétt: „Nei, ekki er ég reið, en mér getur sárnað.“ — Og ljóminn i augum hennar vottaði það betur en orðin, sem hún mælti, að hún sagði satt. Það sló þögn á alla. — Eftir þetta var henni sjaldan stritt, þó að oft væri spaugað við hana. Það cr orðið eitt af rnestu vandamálum nútímans, 'livað heilsu- far almennings er yfirleitt orðið bágborið, þó að lífskjörin hafi

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.