Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 8
4
HEILSUVERND
dómseinkennum, en raunverulegar orsakir sjúkdómanna
hafa orðið útundan. Um þetta efni ritaði hinn mikli líf-
eðlisfræðingur og nóbelsverðlaunamaður Carrel í bók
sinni Man The Unknown.
Um þetta hefur hinum fræga skurðlækni Sir Arbuthnot
Lane farizt svo orð: „Langvarandi reynsla mín sem skurð-
læknir hefur kennt mér, að eitthvað er grunsamlega rangt
við nútímamenningu vora. Og það er sannfæring min, að ef
ekki verður gerbreyting á nútímalifnaðarháttum, er vax-
andi hrun og hrörnun hins hvita kynflokks óumflýjanlegt.11
Ef ekki verður breyting á óttast ég að vestrænnar
menningar bíði hrun og ekki minna en hrun Rómaveldis,
sem m. a. varð vegna þess að þá skorti nýta hermenn til
varnar sínu víðlenda ríki. Nú er svo komið að fslendinga
skortir menn til þess að starfa að sjómennsku. — Hvert
stefnir þessi þjóð?
Það er ekki einhlítt að reisa spítala. Oss vantar menn,
sem geta og vilja taka að sér að kenna þjóðinni heilsu-
rækt. Menn verða að læra þau lögmál, sem ráða heilbrigði
mannsins og þeir verða líka að lifa eftir þeim. Við verðum
að rækta heilbrigði í stað sjúkdóma. Vér verðum að kom-
ast í veg fyrir sjúkdómana, það mundi spara okkur fjár-
útlát og margskonar óþægindi. Vér kostum 52 milljónum
króna til sjúkrahúsabygginga. 10 milljónir fara í allskonar
eiturlyf, sem betur væru ókeypt og ónotuð. Læknafjöldi
vex ár frá ári hér á landi og sjúkdómum fjölgar að sama
skapi eða rúmlega það. Hvar endar þetta?
Til þess að komast í kynni við heilbrigðari menningar-
hætti verðum við að leita í afkimum heimsins fjarri allri
vestrænni menningu. Vér verðum að breyta um hugsunar-
hátt, vinnubrögð og starfshætti, ef vér eigum ekki að falla
fyrir sverði úrkynjunarinnar. Ekki er seinna vænna!
Sannarlega virðist svo sem menn hafi gleymt því að
maðurinn er háður því, sem hann leggur sér til munns,
eins og aðrar lífverur. Maðurinn er það, sem hann etur.
Hann verður að lifa á lifandi fæðu.