Heilsuvernd - 01.04.1957, Side 11
HEILSUVERND
7
konar söltum, volgt eða heitt eftir því hvar er. Engar lindir
sá ég heitari en 70 stig á Celcius mæli.
Vatnið er notað bæði innvortis og útvortis í lækninga-
skyni. Þegar það er drukkið, verka söltin á líkamann á
ýmsa lund eftir því, hver þau eru, en ekki verður farið
út í þá sálma hér. Við flesta baðstaðina eru salir þar sem
drukkið er ölkelduvatn. Sitja menn þar hópum saman,
hver með sína drykkjarkrús drekkandi ákveðið magn á
vissum tímum dags.
Keimurinn af vatni þessu fannst mér yfirleitt ekki ó-
þægilegur, og hann kvað venjast vel. ölkelduvatn má kaupa
á flöskum í búðum, hvar sem er í Þýzkalandi.
Baðlækningarnar eru líka stundaðar af miklu kappi, og
baðmenning stendur á háu stigi. I Vestur-Þýzkalandi eru
rannsóknarstöðvar, sem starfa að rannsóknum á þessu
sviði. Sá ég eina slíka, Das Gollwitzer-Meier Institut í Bad
Oeynhausen í Þýzkalandi. Er það gríðarmikil og nýtízku-
leg stofnun. Þar sá ég margar tilraunastofur og efnarann-
sóknastofur. Voru gerðar tilraunir bæði á mönnum og
dýrum og ekkert til sparað. Tilgangur þessarra stofnana
er að vega og meta á vísindalegan hátt gildi hinna mis-
munandi báðlækningaaðferða, og það er gert með þýzkri
nákvæmni.
Aðra stofnun sá ég líka við Kantónu-spítalann í Zúrich
í Sviss. Þar var einnig unnið af kappi og vísindalegri ná-
kvæmni að lækningum og rannsóknum á baðlækningum
og öðrum nátengdum lækningaaðferðum. Mér var sagt, að
sú stofnun væri hin mesta sinnar tegundar í Evrópu. Sjúkl-
ingafjöldi var þar um 1200.
Læknum við stofnanir þessar bar saman um, að árangur
sá sem næðist með sumum þeirra aðferða, sem þarna voru
reyndar, væri oft mjög góður. Hefi ég hvergi mætt meiri
bjartsýni á að tákast mætti með réttum aðferðum að lækna
margskonar mannamein, t. d. er aðstaðan gagnvart gigt-
inni miklu jákvæðari en hér gerist og virtist mér árangur
eftir því betri.