Heilsuvernd - 01.04.1957, Side 12
8
HEILSUVERND
Lítill leirbakstur.
Fólk það, sem dvaldist á stofnunum þeim, er nú
hafa verið nefndar, var allt sjúklingar í orðsins fyllsta
skilningi. Aftur á móti eru margir þeirra, er á aðra
baðstaði fara, fyrst og fremst að ieita sér hressingar og
hvíldar í skemmtilegu og fögru umhverfi. Slíkir baðstaðir
eru oft geysistórir og baðgestir, sem skipta hundruðum og
jafnvel. þúsundum, búa í gistihúsum og herbergjum í ná-
munda við baðstaðinn. Algengustu baðlækningaaðferðirn-
ar eru vatnsböð af ýmsu tagi, leðjuböð og leirbakstrar.
Auk þess eru notaðar ýmsar tegundir baða, sem fremur
eru til hressingar en lækninga, svo sem finnsk böð og
rómversk, vatnsgufuböð og sundlaugar. Nuddlækningar
og sjúkraleikfimi eru mikið notuð í sambandi við böðin.
Vatnsböðin eru höfð með ýmsu móti, köld, volg eða heit.
Oft er notað vatn úr lindunum, sem látið er halda sérein-
kennum sínum. Kolsýra í vatni hefur þau áhrif að yfir-
borðsæðar húðarinnar þenjast og blóðrásin eykst. Ár-
angur slíkrar meðferðar hefur einkum verið góður hjá
sjúklingum með háan blóðþrýsting. Saltvatn það sem