Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 13
HEILSUVERND
9
kemur úr lindunum verkar einnig örfandi á húðina, en
nokkuð með öðru móti. Auk þessa er oft bætt ýmsum
ilmefnum í vatnið, svo sem t. d. furunálaoliu. Fleiri efni
eru notuð, sem sjaldnar er gripið til.
Kolsýruloftböð eru talsvert notuð við þá, sem ekki þola
önnur böð. Er þá sjúklingnum komið fyrir í einskonar
kassa, þar sem hann hefur þægilegt sæti og getur látið
fara notalega um sig. Höfuðið stendur upp úr kassanum,
svo að öndun er óþvinguð. Þéttað er með hálsinum og kol-
sýrulofti hleypt inn ásamt nokkru magni af hæfilega heitri
vatnsgufu. Böð þessi munu vera mjög notaleg, og er það
til marks, að márgir, sem þetta reyna sofna eftir stutta
stund. Baðverðir sjá um að slíkt valdi ekki slysi. Fylgjast
þeir nákvæmlega með líðan sjúklingsins og hitanum í
kassanum meðan á baðinu stendur. Er allsstaðar lögð
mjög rík áherzla á að vel sé vakað yfir baðgestum, hverrar
tegundar sem baðið er og þess vandlega gætt að misbjóða
ekki líkamanum með of kröftugri meðferð. Enda eiga bað-
staðirnir mikið undir að aldrei hendi slys, sem komið gæti
óorði á stofnunina.
Við leðjuböðin eru notuð trékör, því að jarðsýrurnar
vinna á flestum öðrum efnum. Leðjan, sem notuð er, er
létt í sér og inniheldur mikið af lífrænum efnum. Svipar
henni helzt til þeirrar leðju, sem hér er víða á botni tjarna,
í dýjum og fenjum. Hún er fremur þunn og botnfellur seint.
Fljótandi leðjunni er dælt í karið fyrir notkun og hleypt
niður úr því á eftir. Þessi böð eru höfð heit, oft um 45° C,
en hitinn finnst minna en þegar vatn er notað. Hitinn verð-
ur notalegri með þessu móti og verkun talin dýpri. Böð
sem þessi eru notuð við mörgu, reynast vel við liðagigt og
fleiri tegundum gigtar, en auk þess verkar hitinn á efna-
skipti líkamans, þannig að oft tekst að lækna sjúkdóma,
sem stafa af of lítilli eða rangri starfsemi innrennsliskirtla,
t. d. ýmsa kvensjúkdóma.
Taugaveiklun lagast stundum við þessa eða aðrar teg-