Heilsuvernd - 01.04.1957, Page 16

Heilsuvernd - 01.04.1957, Page 16
HEILSUVERND Nýbygging við heilsuhælið. Myndin hér að ofan sýnir nýbyggingu við Heilsuhælið í Hveragerði með herbergjum fyrir 16 vistmenn, sjúkra- leikfimissal og snyrtiherbergjum. Til vinstri á myndinni er grunnur baðdeildarinnar. Byrjað var á byggingu þessari s.l. haust. Vegna rekstrarafkomu hælisins er nauðsynlegt að ljúka þessum framkvæmdum fyrir næsta sumar. Fé- lagið flytur öllum þeim innilegar þakkir, sem veitt hafa fjárhagslega aðstoð við byggingu þessa, bæði með gjöf- um og kaupum á skuldabréfum félagsins. Enn vantar þó allmikið fé svo hægt verði að ljúka þessum framkvæmd- um fyrir næsta sumar. Með góðvilja, skilningi og samtökum félagsmanna og annarra velunnara félagsins ætti að vera auðvelt að afla þess fjár, sem vantar. 1 því sambandi má geta þess að enn er mikið óselt af skuldabréfum félagsins. Bréfin eru vel tryggð, gefa 7% ársvexti og greiðast upp á 15 árum. Þau fást í skrifstofu félagsins í Hafnarstræti 11, N.L.F. búð- inni Týsgötu 8, og i Hafnarfirði hjá Gunnlaugi Stefánssyni. Félagsmenn munið að við biðjum að þessu sinni ekki um gjafir heldur lán með hæstu bankavöxtum. Hjálpið oss til að koma þessum áfanga upp fyrir næsta sumar. Leggið stein í grunninn, kaupið skuldabréf félagsins. Styrkið gott málefni. S t j ó r n i n .

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.