Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 23

Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 23
HEILSUVERND 19 með ærnum tilkostnaði, dugnaði og fórnfýsi, en ekkert virðist hrökkva til, svo brýn er þörfin orðin. Þeir, sem komnir eru til vits og <ára skynja sjálfir, hvað þeim ber að gera, þegar örðugleikar lífsins eru farnir að þjarma svo að þeim að starfsþrekið er farið að lamast til muna. Flestir leita sér þá lækninga, sem nú er orðið mun auðveldara en áður var. Þeir, sem taka þessu með skynsemi og stillingu, eru móttækilegri fyrir þann mikla sannleika, að bati býr að allmklu leyti í þeim sjálfum. Trú manna, heilbrigð skynsemi, viljakraftur, jafnaðar- geð, ásamt mörgum fleiri góðum eigindum sálarinnar geta verk- að á þreyttan og þjáðan iikama eins og styrkjandi og græðandi lyf. Þessara andlegu lyfja þarfnast mannveran allt frá fæðingu, og má aldrei láta af að bergja á þeim allt sitt æviskeið. Það verður að leggja grundvöllinn að trú og siðgæði barnsins á hvitvoðungsaldri, jafnhliða líkamlegri vellíðan þess og þroska. Ef þetta mistekst, verður afleiðingin alvarleg, en heppnist það, verður ávöxturinn: kærleikur, gleði, friður, langlundargeð, góð- lyndi, góðvild, trúmennska, hógværð og bindindi. Með þvi einu að ávinna sér sem mest af þessum andlegu náðarlyfjum og vera stöðugur í notkun þeirra, geta menn varðveitt heilbrigða sál í hraustum líkama, hvað sem á gengur. Hvaðan kom lítilli stúlku það andlega jafnvægi, sem hún sýndi í því að reiðast ekki, hvernig sem hún var egnd? Hún var ekki annað en lítið barn, sem vissi ekki neitt um það„ hvað liún vann stóran sigur. Stöðug aðgát á framkomu sinni, krefur mikla sjálfs- afneitun, harði innri baráttu og ástundun þess að taka alltaf fyrst og fremst tillit til annarra, áður en þeir svara fyrir sig eða gera nokkuð annað sér til varnar. En menn taka lieldur ekki steininn í staðinn. Það sparar iðkendum sínum alian þennan taugaæsing út af einskisverðum, óteljandi smámunum, sem ekki er ómaksins vert að láta raska rósemi sinni. Það styrkir bæði likama og sál, að temja sér jafnvægi i skapsmunum, þroskar manngildið og veitir sálinni frið og öryggi. Það vinnur á móti allri veiklun — og verður að síðustu annað eðli þeirra, sem aldrei siaka á klónni við sig og láta engan koma sér til neins, sem þeir vita, að ekki á að vera, hversu lævíslega sem að er farið. Að sigrast á sjálfum sér er vissulega meira en að vinna óvígan her i styrjöld, ofar allri annarri keppni og metum. Og mörgum hefur tekizt það með Guðs hjálp, sem er máttug í sérhverjum góðum ásetningi.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.