Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 28
HEILSUVERND
Frá N. L. F. A.
Náttúrulækningafélag Akureyrar efndi til kynningar-
kvölds að Hótel KEA og bauð þangað blaðamönnum og
fleiri gestum.
Formaður félagsins, Jón Kristjánsson, ávarpaði við-
stadda og kynnti þeim stefnu og störf náttúrulækningafé-
laganna. Minntist hann sérstaklega brautryðjanda náttúru-
lækninganna hér á landi, hins háaldraða og síunga manns,
Jónasar Kristjánssonar læknis, er haft hefir forgöngu um
stofnun margra.deilda Náttúrulækningafélags Islands víðs,-
vegar um land, jafnvel úti um sveitir, baráttu hans fyrir
heilsuhæli félagsins í Hveragerði, leirbaðalækningum hans
og öðrum hugðarefnum í þágu mannlegrar hreysti. Kvað
formaður Akureyrardeildinni hugleikið að koma upp mat-
reiðslunámskeiðum í anda náttúrulækninganna, en svo
fáar konur gæfu sig fram til þátttöku í þeim, að félagið
risi vart undir þeim kostnaði.
Kornmyllan mikið notuð.
Gjaldkeri félagsins, Páll Sigurgeirsson, skýrði frá því,
að í kornmyllu félagsins væri malað mikið af korni, þ. e.
hveitikorni, rúgkorni og bankabyggi. Hann kvað félagið
stefna að því eins og önnur samskonar félög, að Islend-
ingar flyttu allt korn sitt inn heil-t og möluðu það sjálfir
jafnóðum og nota þyrfti, og mundi það eitt stórbæta mata-
ræði þjóðarinnar. Tóku nokkrir fleiri til máls og mjög í
sama streng.
Brauðgerð Kristjáns Jónssonar & Co. bakar nú brauð
(Kraftbrauð) úr nýmöluðu korni frá myllu N.L.F.A., og
þykja þau mjög góð.
Bornar voru fram veitingar, te, mjólk og margvíslegar
brauðtegundir, sem félagskonur höfðu bakað. Var margt
af því hið mesta lostæti, þótt hvíta hveitið fyrirfyndist ekki
í þeim né hvítur sykur.