Heilsuvernd - 01.04.1957, Side 34
30
HEILSUVERND
i mikilli fitu. Borinn með laukur, soðinn i fitu, en ekki brúnaður,
og allskonar soðið og steikt grænmeti. Bygggrjón i smjöri eru
góð með buffinu.
Bygggrjón í smjöri:
Byggið er lagt i bleyti í sólarhring, soðið i 10 mín., sinátt brytj-
aðar gulrætur soðnar með og gulrófur, ef vill. Soðinu hellt af og
smjör sett á grjónin, látin liitna vel í smjörinu. Kryddað með
vítamon. Góð með alls konar heitum réttum.
Linsu-grænkálsjaf ningur:
200 gr. linsur iagðar i bleyti í Vi klukkustund og soðnar i lVz
mínútu (soðnar í 20 mín., séu þær ckki lagðar í bleyti). 3 dl. af
mjólk hellt saman við og þykkt með smjörbollu, þ. e. jöfnum
'hlutföllum af heilhveiti og smjörlíki hrærðu saman og sett út i á
sleifinni, þegar sýður. — Þegar jafningurinn er orðinn jafn, er
hann kryddaður með vitamon og söxuðu grænkáli blandað saman
við, látin koma upp suðan. Borinn fram sem sjálfstæður réttur
með harðsoðnum eggjum, tómötum, gúrkum og ristuðu brauði.
Soyabaunir í tómatsósu:
Soyabaunirnar lagðar í bleyti i 1 sólarhring, soðnar i 20 min.
Mjólk blandað saman við soðið, búinn til jafningur með smjör-
bollu og kryddaður með tómatkrafti eða nýjum brytjuðum
tómötum og vítamon. — Borið fram á kvöldborð með brauði og
soðnu grænmeti. Einnig gott með soðnum fiski.
Hvítar baunir í eggjajafningi:
Baunirnar lagðar í bleyti i einn sólarhring, Vt úr pakka, soðnar
i 20 mín. og soðinu hellt af. 2 egg þeytt og 7 matsk. af mjólk eða
rjómablandi blandað saman við. Örlítið smjör sett á baunirnar
og eggjajafningnum hellt á þær, hrært í, svo að ekki brenni við
botninn, þar til eggin eru alveg hlaupin. — Kryddað með vítamon.
Eins má setja vítamonið i vatnið, sem baunirnar eru soðnar i .—
Gott með atls konar heitum réttum.
Itauðar baunir í smjöri:
Baunirnar lagðar í bleyti, soðnar 20—30 mín. Soðinu hellt af
og smjör sett á þær. Góðar með steiktum fiski og kjöti, eins með
ýmsum grænmetisréttum.
Steikt grænmeti í ostsósu:
Alls konar grænmeti, s. s. kartöflur, rófur, gulrætur, hvítkál og