Heilsuvernd - 01.11.1958, Qupperneq 5
HEILSUVERND
67
sem kynnzt hafa þessu félagsstarfi voru, að það er til þess
stofnað að rækta heilbrigði, í stað þess að berjast við sjúk-
dómseinkenni. I þessu starfi var Sigurjón oss ómetnanlegur
liðsmaður. Komu þar fram hinir ágætu hæfileikar hans og
áreiðanleiki ,sem skapaði honum svo mikla tiltrú. Hann
fann vanalega einhver ráð, þegar aðrir voru ráðþrota. Fyr-
ir það er nú félag vort komið svo langt, að í heilsuhæli
þess dvelja um 70 gestir, og hamingjan hefir verið svo
hliðholl, að flestir fá einhvern bata og sumir ótrúlega mik-
inn. Vér getum þakkað þetta að miklu leyti vorum ágæta
framkvæmdastjóra. Vér syrgjum þennan fórnfúsa vin vorn
og starfsmann. Og vér spyrjum: Hvar er svo ágætan mann
að finna, sem geti tekið við starfi hans? Því að skarð hans
er vandfyllt. En umfram allt þökkum vér Guði fyrir að
hafa gefið oss svo ágætan samverkamann. Ég vissi ekki
annað en Sigurjón Danivalsson væri í bezta lagi hraustur.
Hann notaði hverja helgi til að ganga á skíðum í háfjöll-
um, oft í stórhríð, um hávetur. En ég hefi nú heyrt, að
hann hafi fyrir allmörgum árum fengið veilu fyrir hjart-
að. Og nú hné hann niður fyrirvaralaust. Þetta kom oss
vinum hans og samstarfsmönnum mjög á óvart.
Eitt sinn var félag vort illa statt, og horfði óvænlega
um framtíð þess. Ég leitaði þá ráða til snillingsins Gretars
Fells, vinar míns. Hann benti mér á Sigurjón Danivalsson.
Þetta ráð brást mér ekki. Þessi ágæti vinur tók föstum
tökum á málum félags vors og reisti við fjárhag þess. Bygg-
ing heilsuhælisins var hafin, og hefir það nú starfað í full
þrjú ár. Ég efast ekki um, að slíkum manni sem Sigurjóni
Danivalssyni er ætlaður starfi í æðra heimi. Mér þykir
heldur ékki ólíklegt, að hann horfi til vor, sem nú stöndum
við starfið hér. Nú er þessi ágæti og trúi þjónn fallinn fyrir
sverði þess, sem valdið hefir. Vér þökkum góðum Guði
fyrir að hafa gefið oss þennan ágæta vin, sem unnið hefir
að velferð og hjálp til handa hinum mörgu, er dvalið hafa
í heilsuhæli félagsins.
Jónas Kristjánsson.