Heilsuvernd - 01.11.1958, Page 11

Heilsuvernd - 01.11.1958, Page 11
HEILSUVERND 73 inni, að við berum gæfu til að styðja þessar hugsjónir fram til sigurs. Þannig heiðrum við bezt minningu Sigur- jóns og gæzku þess gjafara sem sendi okkur svo góðan liðsmann. Danivalsson Mörgum verður þinn missir sár, mestur þó okkar góða hæli. Ég felldi á mynd þína fáein tár, fann ekki betri eftirmæli. Lilja Björnsdóttir. Kapellusjóðnr Stofnaður hefur verið sjóður, til þess að standa straum af byggingu kapellu við heilsuhælið í Hveragerði. Verður hún tengd minningu Sigurjóns Danivalssonar, fyrsta fram- kvæmdastjóra hælisins, sem lézt 15. ágúst s.l- Jafnframt verður kapellan sjáanleg viðurkenning þess, að þeim, sem að stofnuninni standa, er ljóst, að maðurinn lifir ekki á brauðinu einu saman. Hugsjón náttúrulækningastefnunnar er „heilbrigð sál í hraustum líkama“, og því marki verður aldrei náð nema andanum sé sýnd sú virðing, sem hon- um ber. Teikning hefur enn ekki verið gerð af kapellunni, og hefur ekki verið tekin ákvörðun um, hvert form henni verður valið, en flestum ber saman um, að hún eigi ávallt að vera opin þeim, sem þangað vilja koma til að leita friðar í kyrrlátri fegurð. Þegar hafa safnast um 20 þúsund krón- ur. Þeir, sem hug hafa á að styrkja málefni þetta, eru vin- samlega beðnir að senda framlög sín til framkvæmdastjóra heilsuhælis N.L.F.Í. í Hveragerði, Árna Ásbjarnarsonar.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.