Heilsuvernd - 01.11.1958, Side 23
HEILSUVERND
Hversvegna
fá dýr ekki krabbamein í maga?
1 Heilsuvernd, 3. h. 1949, bls. 18, segir svo í greinaflokk-
inum „Vörn og orsök krabbameins“: „Krabbamein kemur
fyrir í dýrum, einkum húsdýrum, og langoftast í þeim dýr-
um, sem standa næst manninum og eta af borðum hans.
En hinsvegar er það hrein undantekning, að þessi dýr fái
krabbamein í munn eða maga“.
I Fréttabréfi um heilbrigöismál, sept.—okt. 1953, ritar
prófessor Níels Dungal um magakrabba í mönnum og dýr-
um. Skýrir hann svo frá, að krabbamein sé algengara í
maga mannsins en í nokkru öðru líffæri, hér á landi og
víðar um helmingur allra krabbameina. Siðan segir svo
í greininni:
„Dr. P. R. Peacock, sem er forstöðumaður krabbameins-
rannsóknarstöðvarinnar í Glasgow, skrifaði ritgerð um
þetta efni í febrúar 1953, þar sem hann ræðir um þann
mikla mun, sem er á mönnum og dýrum í þessu efni. 1 dýr-
um koma fyrir krabbamein af ýmsum tegundum víðsvegar
í líkama þeirra. En hjá þeim er afar sjaldgæft að finna
krabbamein í maga. 1 dýragörðum hefir mikill fjöldi dýra
verið krufinn, og mörg þeirra eru gömul, en það kemur
varla fyrir, að krabbamein finnist í maga þeirra. 1 Suður-
Afríku eru landsvæði friðuð til að varðveita sem flest af
villtum dýrum landsins. Dýrin, sem deyja á þessum svæð-
um, eru rannsökuð, og liggja þegar fyrir allvíðtækar rann-
sóknir á banameinum þeirra. Jackson birti 1936 yfirlit
yfir rannsóknir sínar á æxlum í húsdýrum, og af 119 ill-
kynjuðum æxlum í hestum var aðeins eitt í maga. I engu
öðru dýri fann hann krabbamein í maga. Svipuð er reynsl-