Heilsuvernd - 01.11.1958, Side 26
HEILSUVERND
Sykursýki læknast með
hráfæði - að læknisráði
Mona Amberntson veiktist af sykursýki árið 1933, að-
eins 19 ára að aldri. Hún lagðist í sjúkrahús, var látin
fasta í nokkra daga, en fékk þó að drekka kaffi og súpur.
Síðan var henni fyrirskipað kraftfæði: 4 egg á dag, 150
gr kjöt, 75 gr flesk, 75 gr ostur og 2 dl af þeyttum rjóma.
Kartöflur mátti hún ekki borða, en hinsvegar fékk hún
nóg af soðnu grænmeti. Slíkt var viðurværi hennar sex
daga vikunnar, en sunnudagurinn var hvíldardagur, þá
fékk hún ekki annað en kaffi og súpu að vild. Að mán-
uði liðnum var blóðsykurinn orðinn eðlilegur, 0.1%, og
henni var leyft að fara heim. Á næstu árum hækkaði
sykurmagn í blóði og þvagi við og við, og árið 1937 varð
hún að leggjast í sjúkrahús á nýjan leik. Þá hafði hún lagt
svo af, þrátt fyrir kraftfæðið, að hún hafði létzt úr 50
kg niður í 37 kg. Nú var farið að gefa henni insúlín og því
haldið áfram eftir heimkomuna. Næstu 12 ár hélt hún sér
við með insúlíni, en árið 1949 varð hún að leggjast í sjúkra-
hús í þriðja sinn, og eftir þá legu var blóðsykurinn 0.39%
eða um fjórum sinnum meiri en eðlilegt er.
Mona Amberntson gat haft fótavist og stundað vinnu
sína. En hún var aldrei heilbrigð.Og nú tók að bera á æ
fleiri sjúkdómseinkennum. Sjóninni hrakaði, það gróf und-
ir tönnunum, og hárið datt af henni. Hún var síþreytt og
varð lotin. Bólgur komu í fótleggi og víðar um líkamann.
Og er hún lagðist í fjórða sinn í sjúkrahús, var komin
eggjahvíta í þvagið, auk sykursins. Þá var henni bannað
að borða saltmeti, en fæðinu og meðferðinni ekki breytt