Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 5

Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 5
6 Á SNYRTISTOFU......................................... Okkur lék forvitni á að vita hvaða þjónustu væri hægt að fá á snyrtistofum, hverjir kæmu þangað helst og í hvaða tilgangi. Við fengum Guðrúnu Möller fyrirsætu til þess að reyna ýmsar gerðir af andlitsböðum og nuddi og urðum nokkurs vísari. SPEGILL, SPEGILL, HERM ÞÚ MÉR......................12 Hér kynnumst við forvörnum á austurlenskan máta er þyggja á því að lesa úr andlitum manna hvaða sjúkdóma þeir hafi tilhneigingu til að fá. HULDI SJÚKDÓMURINN.................................21 Ævar Jóhannesson er mörgum að góðu kunnur fyrir einstakt starf er tengist m.a. gerð seyða úr íslenskum jurtum. Við báðum hann að segja frá hinni illræmdu candida-sveppasýkingu sem er afar algeng hérlendis, en þrátt fyrir það hefur hún ekki hlotið almenna viðurkenningu sem sjúkdómur. M AT ARHORNIÐ.......................................30 Hrafnhildur S. Ólafsdóttir fjallar að þessu sinni um þaunir og gefur okkar nokkrar Ijúffengar uppskriftir. GETNAÐARVARNIR......................................35 Hér er fjallað um allar helstu gerðir getnaðarvarna, nýjungar á þessu sviði og litið á aðferðir sem forfeður okkar notuðust við. JURTIN..............................................40 Senn kemur vorið með blómstur í tún og því tímabært að hugsa fyrir jurtatekju. Ólafur Guðmundsson lyfjafræðingur flytur okkur fróðleik um jurt sem af sumum er illræmd, nefnilega Túnfífilinn. UNGLINGURINN OG SÍGARETTAN...........................44 Ungur kennari, Oddur Albertsson að nafni, er starfar á vegum Krabbameinsfélags Reykjavíkur að forvörnum meðal unglinga segir hér frá starfi sínu. Oddur bendir m.a. á lævísar aðferðir tóbaksframleiðenda til þess að koma vöru sinni á framfæri. ÚTGEFANDl: Náttúrulækningafélag íslands. RITSTJÓRN OG ÁBYRGÐ: Kolbrún Sveinsdóttir. RITNEFND: Hrafnhildur S. Ólafsdóttir, Laufey Steingrímsdóttir og Regína Stefnisdóttir. ÚTLIT OG UMBROT: Kolbrún Sveinsdóttir. AUGLÝSINGAR: Björg Stefánsdóttir. PRÓFÖRK: Pétur Urbancic. MYNDIR: Jens Alexanderson. FILMUVINNA OG SKEYTING: Prentmyndastofan. PRENTUN: Prenttækni. DREIFING REYKJAVÍK: Ævar Guðmundsson sími: 985-23334 Skrifstofa NLFÍ, Laugavegi 20B, Reykjavík. ÁSKRIFTARSÍMI: 91-16371. FRÁ RITSTJÓRA Það er dýrara að lifa á náttúrulækningafæði... Heilsuvernd hefur nú komið út í 46 ár og fræði náttúrulækningastefn- unnar hafa ekki breyst. Það sem hefur þó breyst er viðhorf almennings til fæðu og forvarna. Fyrir 50 árum var starf félagsins og þar með blaðsins brautryðjenda- starf en nú er flestum orðið Ijóst að sú byltingarkennda stefna í hollustumálum sem Jónas Kristjánsson, upphafsmaður Náttúrulækningastefnunnar, boðaði hefur við rök að styðjast og á fullt erindi til manna í dag, það sannar m.a. sá fjöldi nýrra áskrifenda og kaupenda blaðsins sem bæst hafa í hópinn á síðastliðnu ári. Heilsan er okkar dýrmætasta eign og við getum hlúð að henni með ýmsu móti. A sama hátt og augun eru spegill sálarinnar endurspeglar ytra útlit heilbrigði. Fegurðin kemur innan frá og því fer fjarri að útlitið sé marklaus hégómi. Austurlensk læknisfræði tekur mið af þessu. Þar telja menn sig geta greint sjúkdóma, eða tilhneigingar til þess að fá ákveðna sjúkdóma, í andliti fólks. Þess ber að geta að aðferðin er þó fyrst og fremst notuð til forvarna. Um leið og ég fylgi þessu eintaki af Heilsuvernd úr hlaði langar mig til þess að bjóða nýja áskrifendur velkomna en læt þó fljóta með aðvörunarorð: Það er dýrara að lifa á náttúrulækningafæði af því að maður lifir lengur! 5

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.