Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 7

Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 7
HÚDIN endurspeglar innra ástand líkama og sálar. HÚÐIN er stærsta líffæri okkar. krem henti húðinni. Það er heldur ekki sama hvernig þau krem eru notuð. Mikið er um nýjungar á markaðinum og segir María að t.a.m. séu til krem fyrir eldri húð sem eigi að örva frumumyndun húðarinnar. „Þessi krem koma í veg fyrir að slæm ör myndist því að þau hjálpa til við uppbyggingu húðarinnar og geta því hentað unglingum þótt þau séu einkum ætluð fyrir eldri húð". María segir að hún fari ávallt varlega í meðferð slæmra fílapensla því að hún telur hættulegt að kreista þá um of. Þá ráðleggur hún viðskipta- vininum frekar að fara til læknis og fá viðeigandi lyf til að drepa niður bakteríur. Þegar þeirri meðferð er lokið getur hún ráðlagt frekar um notkun andlitsmaska og kremtegunda. „í þessu fagi verður starfsfólk að þekkja sín takmörk", segir María, sem alla tíð hefur lagt áherslu á náið samstarf við lækna þegar vafaatriði koma upp í sambandi við meðferð húðarinnar. „Að taka enga áhættu, eru mín einkunnarorð. Frekar viðurkenni ég takmörk mín og geri minna". LÍFERNIÐ ENDURSPEGLAST í HÚÐINNI Ráðleggingar sem María og stúlkurnar á snyrtistofu hennar gefa varðandi daglega umhirðu húðarinnar tengjast aðallega heilsu- samlegu líferni en það er undirstaða heilbrigðrar húðar. Gott mataræði hefur mikið að segja svo og útivera og góður svefn. Mikil neysla sætinda og gosdrykkja endurspeglast í útliti húðarinnar og reykingar leyna sér heldur ekki. Segist María sjá um leið hvort manneskja reyki eða ekki en húð reykinga- fólks er fölari, þykkari og hrukkóttari en annarra. Þannig kemur húðin upp um innra ástand líkam- ans og nefnir María einnig að hún sjái yfirleitt á húð konu ef hún er ófrísk því að þá verður húðin ofnæmisgjarnari og hleypur upp við minnsta áreiti. Einnig koma fram ákveðnar breytingar á húð þeirra kvenna er nota getnaðarvarnarpillur. RAFBYLGJUMEÐFERÐ VARHUGAVERÐ Andlitsböð og andlitsnudd eru einn viðamesti þátturinn í starfsemi snyrtistofa og á þessu sviði sem öðrum HÚÐVANDAMÁL er best leyst með því að finna orsökina sem getur verið sjúkdómur, rangt mataræði eða andleg vanlíðan. HÚÐIN gegnir því mikilvæga hlutverki að halda iíkamshita okkar í nákvæmu jafnvægi. HEILINN fær fleiri taugaboð frá húðinni en öllum öðrum skynfærum líkamans til samans. í HÚÐ meðalstórs manns eru um 2,5 milljónir svitakirtla. SVITAKIRTLAR eru hvað flestir í lófum og á iljum. ANDREMMA getur stafað frá svitalyktareyði því að við notkun hans er starfsemi svitakirtlanna vísað til lungnanna. HÚDIN framleiðir allt að 3/4 þess D- vítamfns sem líkaminn þarfnast. HÚÐINNI er hollara að komast í beina snertingu við ferskt loft heldur en við sólarljós. HÚÐ reykingafólks verður gráleit, hrukkótt og þykk. 7

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.