Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 23

Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 23
útrýmt en sveppir og rotnunar- bakteríur eru einráð. Einkenni þess eru þrálátt harðlífi og/ eða niðurgangur eða þetta hvort- tveggja til skiptis, mikill vindgangur og uppþemba á kviði, oft með einhverjum verkjum, og þegar lengra líður frá, stundum ristilbólga, ristilpokar og gylliniæð ásamt almennum meltingartruflunum. SVEPPURINiM FÆRIR ÚT KVÍARNAR Meltingartruflanir eru þó aðeins toppurinn á ísjakanum. Eiturefni sem candida-sveppurinn myndar í þörmunum berast stöðugt út í blóðrásina og valda þar margskonar vandamálum sem gerð eru skil í öðrum kafla. Einnig færir sveppurinn stundum út kvíarnar og sest að á nýjum svæðum. Þetta á einkum við ef sjúklingurinn fær áframhaldandi sýklalyfjameðferð, því að þá eru eyðilagðir náttúrulegir óvinir sveppsins sem varna því að hann nái að fjölga sér um of. Algengt er að þeir setjist að í kynfærum kvenna, í munni fólks, á fótum, í nárum og holhönd og víðar og eru þau einkenni oft augljós. Önnur einkenni eru sjaldan flokkuð sem slík enda þótt þau séu oft ekki síður alvarleg. Árið 1951 var tekið í notkun lyfið „nystatin" sem drepur candida albicans-sveppinn. Áður gat sveppasýking í lungum valdið bráðum bana en með þessu lyfi og öðrum er oft hægt að ráða niðurlögum sveppsins. Sá galli fylgir þó lyfinu að upptaka þess gegnum meltingarfærin er mjög léleg svo að sveppasýking annars staðar en í meltingarfærum er oft erfið viður- eignar og þarfnast langvarandi lyfjagjafar. EITUREFNIN BERAST ÚT í BLÓÐIÐ Dr. C. 0. Truss hefur rannsakað sveppasýkingu í fjölda ára. Hann segir að candida-sveppurinn myndi eitur- efni í þörmunum sem berist þaðan út í blóðið. Einkum er það eitt ákveðið efni sem hann telur líklegt að sé helsti skaðvaldurinn en það nefnist „acetaldehyd" og framleiða sveppirnar þetta eiturefni er þeir nærast á einföldum kolvetnum, t.d. sykri, er lítið eða ekkert súrefni kemst að. Venjulegir gersveppir, sem t.d. eru notaðir við öl- og brauðgerð, mynda þetta efni einnig sem millistig en breyta því síðan í ethylalkohol, þ.e. vínanda. Flestir stofnar af candida albicans eru ófærir um að framleiða vínanda í nokkru teljandi magni við þær aðstæður sem eru í þörmunum. Þó hafa fundist stofnar sem mynda nægilegt magn vínanda til þess að hækkun áfengis mælist í blóði. Þeir stofnar eru þó afar sjaldgæfir. Venjulega ganga efnaferlin eins og hér er sýnt: Pyruvat + H+ -» acetaldehyd Eins og efnajafnan sýnir myndast acetaldehyd og kolsýrugas. Kolsýran veldur því mikla lofti í þörmum sem oftast þjáir fólk með candida sýkingu. Acetaldehydið berst gegnum þarma- Gersveppir finnast venjuiega í heilbrigðu fólki O — vinsamlegir gerlar — gersveppir ö — sýklar Meltingarfæri og kynfæri heilbrigðrar konu. veggina út í portæðina sem ber það til lifrarinnar, en hún brýtur það niður í önnur skaðlaus efnasambönd á meðan geta hennar leyfir. Sá ferill er allvel þekktur úr rannsóknum á niðurbroti áfengis í líkamanum, en acetaldehyd er fyrsta niðurbrotsefni sem myndast þegar áfengi brotnar niður í lifrinni og er af sumum talið vera einn aðalskaðvaldurinn við ofnotkun áfengis. + C02 Þegar sveppunum fjölgar óeðlilega veikla þeir ónæmiskérfið o — vinsamlegir gerlar Y — gersveppir é — sýklar Meltingarfæri og kynfæri konu með sveppasýkingu. Algengt er að sveppurinn setjist að í kynfærum kvenna, í munni fólks, á fótum, í nárum, holhönd og víðar... 23

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.