Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 14

Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 14
í andlitum er hægt að greina áhrif hinna innri afla. Sumir eru með innstæð augu (yang), aðrir með útstæð augu (yin). Þeir sem skarta flötu nefi gætu átt erfitt með að halda gleraugum uppi en þar sem flatt nef lýsir yang-ástandi eru litlar líkur á að þörf sé á gleraugum. Munnar geta ýmist verið þrútnir og útstæðir eða þunnir og grunnir. Fólk með þunnar varir er yfirleitt sterkt en því hættir til að vera ósveigjan- legt. Lóðréttar línur í andliti eru yin, en láréttar línur eru yang. Mjó og löng augu eru því meira yang, en stór og opin augu eru yin, lóðréttu öflin eru þar ráðandi. Langt nef er yin, sérstaklega þó ef það er mikið útstætt, en flatt nef er meira yang. Séu nasirnar sem útþandar í lárétta stefnu sýnir það einstakling í yang-ástandi. Annað mikilvægt merki um yang-ástand er þegar kjálkarnir éru stórir og vel lagaðir. Einstaklingar með þess konar lárétt mótað andlitsfall eru oft mjög athafnasamir. Yin-lagað andlit: Hakan er skörp Andlitið myndar þríhyrning sem vísar niður Ennið er stórt Yang-lagað andlit: Hakan er sem nær flöt Andlitið myndar þríhyrning sem vísar upp Samdráttur í andlitsfalli (yang): Hlutfallslega stutt er milli augna og munns (a) Mjög stutt er milli augna (b) Nefið er flatt Augun eru iítil Útvíkkun í andlitsfalli (yin): Frekar langt er milli augna og munns (a) Frekar breitt er milli ytri augnkróka (b) Nefið er langt og þanið Augun eru stór Augu Augasteinar sem vísa að nefi vitna um yang. Almennt merki um of hátt sýrustig í blóði og háan blóðþrýsting. Augasteinar sem vísa að eyrum eru merki um yin. Almennt merki um að blóðið sé of lútarkennt og hætta sé á krabbameini. Þegar annar augasteinninn vísar að nefi en hinn er eðlilegur getur það bent til sykursýki. Hægt er að skipta augasteini niður í yin- og yang-svæði. Yang er það svæði augans sem liggur frá miðju þess og í átt til nefsins en yin frá miðju og í átt til eyrans. Yang- svæðið svarar til líkamans að aftanverðu en yin-svæðið til líkamans að framanverðu. Séu öll líffæri líkamans veik er hægt að greina tólf blóð- hlaupnar línur í augnhvítunni. Venjulega er hægt að sjá fjórar iínur en ef þær eru orðnar sex talsins er um alvarleg veikindi að ræða. Þessar iínur segja okkur að ójafnvægi sé í líkamsstarfseminni. Neyti maður matar fyrir 1 4 NEF

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.