Heilsuvernd - 01.03.1991, Blaðsíða 25
að taugaboðefnið acetyl-kolin verði
óvirkt að meira eða minna leyti. Einnig
er talað um truflandi áhrif acetaldehyds
á svokallað „acetyl coenzym A" sem
gegnir mjög mikilvægu hlutverki.
Flest þessi vandamál eru lík eða þau
sömu og stafa af ofnotkun áfengis, en
þau hafa verið rannsökuð allvel. Of
langt mál er að gera þeim öllum skil
hér enda tæplega á færi annarra en
sérfræðinga að hafa gagn af þeim
upplýsingum.
Ekki má gleyma því að ýmis einkenni
frá miðtaugakerfi geta stafað af
ofnæmi sem orsakast af því að
ónæmiskerfið starfar ekki rétt. Hin
fjölmörgu dæmi um að ýmiss konar
taugaveiklun og sál-líkamlegir
sjúkdómar hafi læknast þegar
sveppasýkingunni er útrýmt, gætu
bent til þess að ofnæmi eigi drjúgan
þátt í þeim sjúkdómum.
OFIMÆMI
Ýmiss konar ofnæmi eru þeir
sjúkdómar sem algengast er að fylgi
sveppasýkingu. Venjulega fylgja
ofnæminu fleiri einkenni. Stundum
lagast öll einkennin fljótlega eftir að
meðferð gegn sveppunum er hafin.
Allir sem þjást af ofnæmissjúkdómum
ættu að reyna þá meðferð sem lýst
verður síðar í þessari grein.
Við ofnæmissjúkdómum eru oft notuð
lyf sem deyfa ónæmisviðbrögð
líkamans. Þessi lyf gera ástandið þó í
raun og veru verra því að séu
ónæmisviðbrögðin deyfð, slævast
varnarviðbrögð líkamans og hann
hættir að verja sig fyrir sveppunum
sem þá fá óhindrað að eitra líkamann.
Þannig er kominn í gang vítahringur
sem erfitt er að rjúfa.
Margir telja að helsta vandamál
langvarandi sveppasýkingar sé að
líkaminn myndi ofnæmi gegn
sveppunum sjálfum eða einhverjum
efnum sem þeir mynda. í þeim tilfeilum
nægir ekki að fækka sveppum þeim
sem herja á líkamann heldur verður
að útrýma þeim algjörlega, auk þess
sem ekki má neyta neinnar fæðu sem
sveppir eru í.
Oft er ekki nóg að forðast candida-
sveppi heldur þarf einnig að gæta sín
á margs konar öðrum sveppum eins
og t.d. ölgeri, brauðgeri, myglu og
jafnvel ætisveppum auk þess sem öll
sætindi eru bannvara.
Af þessu leiðir að öll brauð bökuð með
lifandi geri valda ofnæmisviðbrögðum
og um öl, hvítvín, rauðvín, sherry og
önnur vín sem framleidd eru með
gerjun gegnir sama. máli. Reyndar eru
gerjaðar matvörur svo stór liður í
mataræði flestra að mjög erfitt er að
setja saman algerlega gerlaust fæði.
Dr. John Mansfield telur í bók sinni
"Migrenbyltingin" að migren sé
einn þeirra sjúkdóma sem tengjast
candida-sýkingu. Hann notar m.a.
tækni sem nefnd er " afvirkjun"
(neutralization) í bókinni, til að
"afnæma" fólk gegn ýmsum
ofnæmisvöldum þ.á m. geri og
gerjuðum matvælum. Aðferðin er
útskýrð vel í bókinni og bendi ég
lesendum, sem vildu kynna sér
þessa tækni, að lesa bókina sem
er hafsjór af fróðleik um ofnæmi
og sveppasýkingu.
Candida-sveppir geta birst í tvenns
konar lífsformum. Venjulega eru
þeir kúlulaga og hegða sér þá líkt
og brauðger eða ölger.
Stundum breyta þeir þó um
lífsform og fara að skjóta þráðum,
nokkurs konar rótaröngum, inn í
umhverfi sitt, t.d. þarmavegg.
Þræðirnir festa sveppinn við
þarmavegginn og þar vaxa þeir inn í
slímhúðina og geta tekið þaðan upp
næringu. Við þetta veiklast slímhúðin
og líkur benda til þess að það valdi því
að hún verði gegndræpari, þannig að
stórar sameindir, sem valdið geta
ofnæmisviðbrögðum, berist úr
þarmainnihaldinu út í blóðrásina,
Ofnæmisviðbrögin geta komið fram í
þörmunum sjálfum eða einhvers
staðar annars staðar í líkamanum í
óteljandi myndum.
Talað hefur verið um að viss fæða
dragi úr líkum á að sveppirnir „skjóti
rótum" í þarmaveggina. T.d. er talið
að olífuolía hindri þetta að einhverju
leyti. Fitusýra sem nefnd er „capryl-
sýra" er jafnvel notuð sem sveppalyf.
Tengsl ofnæmis og sveppasýkingar
eru svo náin og samtvinnuð að tæpast
er hægt að ræða um annað nema
25