Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 8

Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 8
jj». Astandi húðarinnar verður aidrei leynt með farða. Við komumst alltaf að sömu niðurstöðu ..." hefur tæknin haldið innreið sína. Margar snyrtistofur bjóða nú upp á rafmagnsnudd þar sem vöðvar eru örvaðir með rafbylgjum. Slík meðferð hefur stundum verið nefnd „mini face-lift" sem þýða mætti smávægileg andlitslyfting. Aðspurð Telur hún geta verið hættulegt að nota rafbylgjurnar á unga, heilbrigða húð og vöðva því að þarna sé verið að grípa fram í fyrir náttúrulegri virkni þeirra. „Húðin og vöðvarnir eiga að vinna sjálf. Það er miklu æskilegra að stunda kvaðst María algjörlega mótfallin slíkri meðferð. Hún segist hafa aflað sér upplýsinga um þetta og telja varhugavert að nota rafbylgjur í óhófi. Þessi tækni er fyrst og fremst notuð til að örva lamaða vöðva og fá þá til að starfa eðlilega á ný. 8 andlitsleikfimi til að örva starfsemina", segir María. Tilgangurinn með andlitsböðun er að hreinsa húðina og örva blóðstreymið. Byrjað er á að hreinsa húðina vel með olíu og hreinsikremi. Þá eru innrauðir geislar notaðir í 5-10 mín. til þess að örva blóðstreymi og mýkja upp og hita vöðva. Geislarnir fara inn í vöðvana og gera þá mun meðfærilegri fyrir nuddið. Síðan er nuddað með höndunum í 10-20 mín. eftir aldri en skemmri tíma þarf fyrir unga húð en eldri. Segir María óæskilegt að nuddað sé of lengi því að þá geti maður farið að grípa fram í fyrir náttúrulegri starfsemi húðar og vöðva. Að nuddinu loknu er settur hreinsimaski á andlitið sem dregur út óhreinindi er liggja djúpt í húðinni. Hreinsimaski er valinn með tilliti til tegundar húðarinnar og þarf hann að vera á húðinni í 3-10 mín. Að lokum er borið viðeigandi dagkrem á húðina. HVAÐA KREM? Það er vandasamt verk og ábyrgðarhluti að ráðleggja fólki hvaða krem það á að nota. Þeir sem eru með mjög viðkvæma húð þurfa að varast að vera stöðugt að gera tilraunir og reyna eitthvað nýtt. Það hefur stundum verið sagt að ekki skyldi maður nota sama vörumerki snyrtivara of lengi því að við það geti myndast ofnæmi. María er alveg ósammála þessu og segist sjálf hafa notað sömu tegund í fjölda ára. „Ég mæli eindregið með því að nota þá tegund er reynst hefur vel", segir hún. „Það er sölubrella að segja að skipta þurfi um tegundir". Dagkrem eru notuð daglega til að viðhalda réttu rakastigi húðarinnar, mýkt og teygjanleika. En margir átta sig ekki á að húð okkar er mjög mismunandi eftir svæðum líkamans og meira að segja á svæðum í andliti. Húðin í kringum augu er t.a.m. aðeins 1/7 af þykkt húðarinnar á hálsinum og 1/5 af þykkt húðarinnar annars staðar í andlitinu. Því þykir æskilegt sérstakt augnkrem sem er samsett með tilliti til viðkvæmni svæðisins og þess að það eru engir fitukirtlar í húð augnloka. Það er líka hægt að fá hálskrem sem margar konur trassa að nota að sögn Maríu og þar með talin hún sjálf. Þá er einnig hægt að fá krem sem veita vörn gegn frosti og vindum og henta þau krem einnig vel fyrir fólk sem stundar sund því að þau koma í veg fyrir að húðin þorni of mikið og springi. AF HVERJU ANDLITSMASKAR? Maskar eru þær tegundir krema kallaðar sem bornar eru á húðina og þurfa að liggja á henni í nokkurn tíma til þess að verka en eru síðan fjarlægðar eftir ákveðinn tíma. Tilgangurinn með notkun maska getur verið á ýmsa vegu. Til eru hreinsimaskar, raka-

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.