Heilsuvernd - 01.03.1991, Qupperneq 15
<SÍ>
nætursvefninn, fæðu úr
dýraríkinu, drekkur bjór,
svalar sér á ís o.s.frv. má sjá
margar smáar háræðar á
maga-, garna- og baksvæði
augasteinsins að morgni.
Löng augnahár eru yin.
Nútímakonan hefur misst
mikið af sínum „uppruna-
legu" augnahárum sökum of
mikillar neyslu á dýrafæðu
sem eyðileggur náttúruleg
yin-gæði hennar.
Augasteinar vísa oftast upp
á við og augnhvítan sést þá til
hliðar og fyrir neðan þá. Sú
staða myndast vegna
útvíkkandi afla (yin). Þegar of
mikils er neytt af yin-fæðu
stækka augun og þar sem þau
hvíla á beini og snúast um
öxul þess rúlla þau upp.
Vegna samandragandi afla
(yang) vísa augasteinar niður
og augnhvíta sést til hliðanna
og fyrir ofan augasteina. Slíkt
er eðlilegt hjá nýfæddum
börnum en fullorðnir einstakl-
ingar með slík augu reynast
oft ofbeldishneigðir.
Nær allir nú til dags eru með
augasteina sem vísa upp á
við með auðsjáanlega hvítu
til hliðar og fyrir neðan
augasteinana. Líkaminn er í
of miklu yin-ástandi og í stað
þess að halda sínum æskilega
stinnleika verður hann
slappur, bæði vöðvar og
líffæri.
Æskilegast er að augasteinar
séu fyrir miðju augna, því meir
sem sést í augnhvítu því verra
er líkamlegt ástand viðkom-
andi.
Útstæð augu myndast við
lárétta útvíkkun og þótt ástand
þeirra sé ekki eins mikið yin
og minnst var á hér á undan
þá er hér merki um veikleika.
Við lárétta útvíkkun breytist
sjónin, fjarlægð frá augasteini
að sjónhimnu breytist og
veldur það nærsýni.
í austrænum fræðum þykir
bæði lóðrétt og lárétt útvíkkun
bera með sér óhamingju eða
hættu. Útvíkkunin veldur því
að miðtaugakerfið og heilinn
þrútna og skynjun verður
ónákvæm. Þegar frumur í stóra
heila víkka út minnkar hæfni
þeirra til að skynja rafseguls-
orku. Hugsunin gerist tak-
mörkuð og rugluð og heildar-
,sýn glatast.
Heilbrigður einstaklingur hefur
ótrúlega ályktunarhæfni og
getur auðveldlega skynjað
hættu. Menn ættu alla vega að
standa jafnfætis dýrunum að
því er varðar þessa hæfni. Þekkt
er að rottur flýja hús og skip
fyrir eldsvoða og snákar grafa
sér djúpar holur og leggjast í
híði áður en óvanalega kaldur
vetur gengur í garð. Forfeður
okkar þekktu náttúruna og
náttúruöflin og gátu þannig
skynjað aðsteðjandi hættu og
verndað sig tímanlega. Margir
höfðu þessa hæfileika en nú
finnast þeir hjá mjög fáum og
verður það m.a. til þess að fleiri
farast voveiflega en ella.
Kringlótt eða möndlulaga
augu
Þótt kvenfólk sé meira yin en
karlmenn er það oftar með
kringlótt augu sem sýna yang-
ástand.
Ytra útlit kvenna er nefnilega
meira yin en innvortis eru þær
meira yang. Hér og þar brýst
yang fram í líkamanum og eru
augun gott dæmi um það.
Kona með kringlótt augu er
mild og kvenleg en sé hún með
aflöng augu er líklegra að hún
sé framtakssöm og jafnvel
karlmannleg.
Karlmaður með kringlótt augu
er líklega viðkvæmari, listrænni
og blíðari en karlmaður með
mjó augu en hann er aftur á
móti sterkur og framtaks-
samur.
15