Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 17

Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 17
er óhófleg neysla á dýra- afurðum þar á meðal öllum mjólkurafurðum. Varir Efri vör samsvarar magan- um, efsti hlutinn svarar til efri maga, miðjan til miðju magans og neðsti hlutinn á vörinni og munnvikin til skeifugarna. Neðri vör sýnir ástand þarma. Efri og neðri vör ættu að vera jafnþykkar. Stærð efri varar sýnir ástand lifrarinnar og sé hún bólgin er stækkun í lifrinni. Of mikils er neytt af mat og hætta er á andlegu ójafnvægi. Stærð neðri varar sýnir ástand ristils og sé hún bólgin er það veikleikamerki garnanna sem leiðir til harðlífis. Séu báðar varir bólgnar eru líkur á flogaveiki. í því tilfelli hefur einstaklingi verið gefinn of mikill matur í barnæsku. Varir ættu að vera bleikar á litinn en dökkna er aldurinn færist yfir. Ung manneskja með dökkar varir er með blóðstöðnun. Blóðrásin er slæm sökum óhóflegrar neyslu á dýrafitu. Fólki með dökkar varir hættir til að mynda krabbamein og sjúkdóma í kynfærum. Tennur Oddhvassar tennur vitna um mikla kjötneyslu í barnæsku. Skemmdar tennur sýna veikbyggð bein. Hjá kvenfólki fylgir dökkum góm og vörum oft óregla í tíðahring eða æxlismyndun í móðurlífi. Fólk með beinar tennur er vanalega yfirvegað og þolin- mótt. Margir hafa óreglulegar tennur, sumar vísa inn en aðrar út. Bendir það til mjög óyfirvegaðs mataræðis. Fólki með slíkar tennur fylgja oft mikil vandamál, þeim hættir til mikilla skapsveiflna. Með jafnvægi í mataræði er hægt að ná eðlilegri lögun og stærð tannanna. Of mikil dýrafæða stækkar augntennurnar og gerir þær oddhvassar. Tunga Tungan sýnir í flestum tilfellum ástand hjarta og maga. Hvít tunga sýnir að maga- vandamál er í uppsiglingu. Ef ekki er hægt að teygja tunguna beint út er vandamál í taugakerfi eða heila. Eðlilegur litur á tungu er bleikur en ef hann er rauður bendir það til hjartatruflana. Eins bendir djúp sprunga í miðju tungunnar til vanda- mála í tengslum við hjarta. Ef jafnvægi er komið á mtaræði, skipt er frá dýra- afurðum yfir í jurtafæðu, geta hvítir eða gulir blettir myndast í tungurótinni, færst síðan til miðjunnar og loks á tungu- broddinn. Hér eru á ferðinni tungusveppir, eins konar úrgangur. Verið er að yfirvinna innvortis sjúkdóm. Sé sterks yin-matar neytt á meðan skán liggur á tungunni eins og sykurs eða alkohóls munu sveppirnir hverfa. Venjulega tekur það sveppina tvo mánuði að færast frá tungurót til tungubrodds. Svört tungurót sýnir að líkur séu á krabbameini. Ef tungu- sveppir, fjólubláar hendur og svartar neglur fara saman er mikil hætta á krabbameini. Eyru Eyru sem liggja þétt að höfðinu og sérstaklega stór eyru fylgja einstaklingi sem er í jafnvægi. Mikilhæfir leiðtogar fortíðar- innar höfðu slík eyru, þeir hlustuðu á allar hliðar málanna og drógu skynsamar ályktanir. Lítil eyru takmarka ályktunar- hæfni. Eyru sem hreyfast mikið, líkt og eyru refa og hunda, benda til óhóflegrar neyslu á dýraafurðum. Æskilegt er að efsti hluti eyrans sé í línu við ytri augnkróka. Löng eyru með stórum eyrna- sneplum sýna yang-ástand eins ef þau liggja flöt að höfði. 17

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.