Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 24
Ekki er ólíklegt
að bjögun
ónæmiskerfisins sé
ein aðalorsök þess
að krabbamein
myndast.
>é ónæmiskerfið veiklað herja
sjúkdómar á líkamann.
þreyta,
höfuðverkur,
þunglyndi,
verkir í kviðar
holi afl.
Sveppasýking
í kviö, nöglum
og leggöngum.
Bakteríu- og
veirusýkingar.
Sveppir eru aðeins einn þeirra
þátta sem veikja ónæmiskerfið.
Sveppasýking
Skortur réttra
næringarefna
I
Þættir sem
veikla ónæmis-
kerfið
__Ýmis efna
sambönd
meö
eiturverkanir
Ofnæmivaldar
Ýmsir sveppir í fæflu Qg umhverfi
f umhverfinu
Jafnvel þó að lifrin hafi í sumum
tilfellum afkastagetu til að brjóta niður
allt það acetaldehyd sem til hennar
berst, eru þó blóðfrumur í stöðugri
snertingu við eitrið á leið sinni eftir
portæðinni. Það gæti m.a. skýrt hvers
vegna blóðfrumur í fólki með candida-
sýkingu starfa óeðlilega.
ÓIMÆMISKERFIÐ
Ef til vill er bjögun á ónæmiskerfinu
það alvarlegasta við candida-sýkingu.
Röng starfsemi þess getur valdið
ótölulegum fjölda sjúkdóma sem
sumir hverjir eru mjög alvarlegir. Þar
má telja ýmiss konar sýkingar þar sem
bakteríur og veirur koma við sögu.
Starfi ónæmiskerfið illa er líkaminn
varnarlaus gegn slíkum sýkingum. Þar
næst má nefna svokallaða sjálfs-
ónæmis- (auto-immune) sjúkdóma. í
þeim flokki eru heila- og mænusigg
(M.S.), liðagigt og fleiri gigtar-
sjúkdómar efstir á blaði. Þá koma ýmsir
ofnæmissjúkdómar t.d. astma, exem,
ýmiss konar útbrot og ótalmargt fleira.
Jafnvel hefur verið talað um að sumir
geðsjúkdómar kunni að vera
ofnæmissjúkdómar í eðli sínu.
Ekki er ólíklegt að bjögun ónæmis-
kerfisins sé ein aðalorsök þess að
krabbamein tekur að myndast. Þetta
er ennþá ekki fullkomlega sannað, þó
að flest bendi til að svo sé.
Ónæmiskerfinu er stjórnað af hvítum
blóðfrumum sem nefndar eru
lymfósýtur (lymphocytes). Af þeim eru
til nokkur afbrigði sem gegna
mismunandi hlutverkum í vörnum
líkamans. Hér verða aðeins nefnd tvö
þessara afbrigða: T-hjálparfrumur og
T-bælifrumur (T-suppressor lympho-
cytes). Hjálparfrumurnar hafa m.a. það
hlutverk að þekkja óæskilegar örverur
sem berast inn í líkamann. Einnig er
talið að þær kunni að eyða
krabbameinsfrumum jafnóðum og
þær myndast, sé starfsemi þeirra í
lagi.
Ruglist þær í ríminu, ef svo mætti
segja, hætta þær stundum að þekkja
„vini" frá „óvinum". Stundum ráðast
þær á frumur þess líkama sem þær eru
í og eyða þeim. Það eru nefndir
sjálfsónæmissjúkdómar. Stundum
hætta þær að þekkja einhverja
skaðvalda t.d. krabbameinsfrumur eða
sýkla og láta afskiptalausa. Allir þekkja
afleiðingarnar.
T-bælifrumurnar eru m.a. taldar hafa
það hlutverk að stöðva starfsemi
hjálparfrumanna þegar „óvinurinn"
hefur verið yfirunninn og hindra
þannig að þær fari að eyða
líkamsvefjum í umhverfinu. Þetta er
að vísu mjög einfölduð mynd af
starfsemi þessara fruma en hún sýnir
þó glöggt hversu mikilvægt það er að
þær starfi rétt.
Sannanir eru fyrir því að candida-
sveppasýking truflar þessa starfsemi.
Jafnvel hefur verið bent á að candida-
sýking gæti verið meðvirk orsök að
eyðni. Vitað er að candida-sveppurinn
getur myndað það sem nefnt er
„ónæmislömun" (immunologic
paralysis), þ.e. að ónæmiskerfi
líkamans hættir þá að verjast ásókn
sveppsins sjálfs og lætur hann
afskiptalausan eins og hann væri
eiginn líkamsvefur. Það er að
sjálfsögðu mjög alvarlegt ástand og
leiðir til dauða sé ekkert aðhafst.
SVEPPASÝKIIMG OG
MIÐTAUGAKERFIÐ
Sannanir liggja fyrir um það að
sveppasýking hafi margs konar
truflandi áhrif á miðtaugakerfið.
Þær truflanir geta vafalaust átt sér
mismunandi lífefnafræðilegar orsakir.
Talið er að acetaldehyd geti bundist
aminóhópum í taugaboðefnum og
myndað svokallaða „falska
taugaboða" (Colun og Collins 1970,
Davis og Walsh 1970). Þessi efni hafa
fundist í litlu magni í þvagi (Sandler
o.fl. 1973). T.d. er vitað að acetaldehyd
getur myndast með taugaboðefninu
„dópamín", efni sem hefur líkar
verkanir og morfín. Sumir telja þetta
efni einmitt vera orsök áfengis-
fíkninnar. Samkvæmt því má leiða líkur
að því að sveppasýking ýti undir
áfengisfíkn og einnig að frá-
hvarfseinkenna gæti fyrst eftir að
sveppum í meltingarfærum er útrýmt.
Bent hefur verið á að ákveðin mótefni
(antibody) sem candida-sveppurinn
hvetur líkamnn til að mynda, valdi því
24