Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 26
Margt bendir til
að seyði af
sumum
íslenskum
fléttutegundum
kunni að vera
gagnlegt sem
sveppalyf.
Fjölmörg dæmi eru
um að heila- og
mænusigg læknist
þegar candida-
sýkingu hefur verið
útrýmt. Vitanlega
tekur það þó
nokkuð langan tíma
þar til að fullur bati
er fenginn. Líkt má
segja um liðagigt
og fleiri
gigtarsjúkdóma.
Oftast lagast
þrálátur
höfuðverkur, þ.á
m. migren.
nefna hitt um leið. Sumir álíta að
candida-sveppir geti sest að í vöðvum
eða á milli vöðva og valdið þar bólgum
og verkjum. Höfundur hefur þó ekki
séð neinar sannanir fyrir þessu og vill
því ekki leggja neinn dóm á hvort verkir
í vöðvum eða liðum, sem oft hrjá þá
sem þjást af sveppasýkingu, stafa beint
frá sveppunum eða vegna eitur- eða
ofnæmisáhrifa tengdra þeim.
LÆKNIIMG SVEPPASÝKINGAR
Þegar greinarhöfundur skrifaði fyrst
um þetta efni árið 1984, gaf hann
lesendum nokkrar ráðleggingar til þess
að útrýma sveppum úr meltingar-
færum og hindra að þeir settust þar að
á nýjan leik. Sennilega hefur þar heldur
mikillar bjartsýni gætt með það hversu
auðvelt þetta væri. Reynsla þeirra ára
sem síðan eru liðin hefur sannfært
greinarhöfund um að þetta er í sumum
tilfellum alls ekki eins auðvelt og virst
gæti við lestur þeirrar greinar. Lækning
á sveppasýkingu þarf helst að gerast
með þrennu móti:
1. Með mataræði sem tryggir að
sveppir í meltingarfærum fái sem allra
minnst af þeim efnum úr fæðunni sem
þeir geta notfært sér til vaxtar og
fjölgunar. Þessi efni eru aðallega
einföld kolhydröt t.d. ýmiss konar
sætindi og unnin sterkja.
2. Með því að gefa lyf sem drepa
sveppina eða hindra fjölgun þeirra.
3. Með því að „gróðursetja" nýja,
heilbrigða þarmaflóru, þegar
sveppunum hefur verið útrýmt úr
meltingarfærunum. Sé þess ekki gætt
er hætta á að fljótlega sígi aftur á
ógæfuhliðina og sveppir og
óheppilegar bakteríur setjist að í
meltingarfærunum á nýjan leik.
Nokkur sveppadrepandi lyf fást út á
lyfseðil í apótekum. Mest notaða lyfið
er „nystatin", sem hér á landi er selt
undir nafninu „mycostatin". Notaðar
eru 2-8 500.000 ein. töflur. Lyfið drepur
aðeins sveppi í meltingarfærum, en
fer lítið út í blóðrásina. Nystatin er
einnig til í vökvaformi til að nota
útvortis og skola munn. Þá eru og til
stílar til að setja í leggöng.
Annað mikið notað sveppalyf er
„ketokonazole", stundum nefnt
„fungoral". Það fer út í blóðrásina og
verkar því hvar sem er í líkamanum
nema í miðtaugakerfi og það - sem
furðulegra er - í meltingarfærunum.
Það er stundum gefið samtímis og
nystatin. Ketokonazole getur valdið
lifrarskaða, sé það gefið lengi en
alvarlegar aukaverkanir af nystatini eru
ekki þekktar.
Nokkur fleiri sveppalyf eru til, sem
ekki verður rætt um hér. Nýlega kom
t.d. á markaðinn nýtt sveppalyf,
upprunnið í Danmörku. Að sögn er
það mjög öflugt, en þar sem
greinarhöfundur veit alls ekkert um
það verður ekki frekar rætt um það að
sinni.
Mörg náttúruleg efni eru talin vinna
gegn sveppum. í heilsufæðubúðum
er t.d. seldur jurtaextrakt sem nefndur
er „spilantes".
Spilantes er talið mjög öflugt
sveppalyf, bæði útvortis og í
meltingarfærum. Það er upprunnið frá
blökkumönnum í Afríku.
Börkur af tré sem vex í Suður-Ameríku
er einnig talinn öflugt sveppalyf auk
þess að vera gagnlegur við mörgu
öðru. Börkur þessi gengur undir
ýmsum nöfnum, en hér á landi hefur
hann verið nefndur „la pacho".
Börkurinn er soðinn í marga
klukkutíma og seyðið drukkið.
Cayenne-pipar er talinn drepa bæði
sveppi og fjölda sýkla sem valdið geta
sýkingum í meltingarfærum og víðar.
Líkt má segja um hvítlauk. Vísindalegar
rannsóknir sanna að hrár hvítlaukur
drepur candida-sveppi og ýmsar
bakteríur. Þó þarf sennilega að neyta
nokkuð mikils af honum ef hann er
notaður sem sveppalyf.
Flestir hvítlauksbelgir og aðrar
hvítlauksafurðir eru þó að öllum
líkindum gagnslitlar til að útrýma
sveppum.
Margt bendir til að seyði af sumum
íslenskum fléttutegundum kunni að