Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 31

Heilsuvernd - 01.03.1991, Síða 31
EFTIR HRAFNHILDI S. OLAFSDÓTTUR MATARHORNIÐ I þessum þætti fjalla ég um baunir. Til eru margar tegundir af baunum. Þær eru mismunandi í útliti, lögun og lit og efna- innihald þeirra er einnig mismunandi. Af baunum eru það trúlega sojabaunir sem flestir kannast við. Þær eru upprunnar í Suðaustur-Asíu og öldum saman hafa þær verið aðaleggjahvítu- gjafi margra Asíuþjóða. Sojabaunir voru fyrst fluttar til Englands og Bandaríkjanna um aldamótin 1800 og voru þær þá notaðar til skepnufóðurs og sem hráefni í fjölmargar iðnaðarvörur. Það er því tiltölulega stutt síðan Vesturlandaþjóðir uppgötvuðu hina óvenjulegu yfirburði þeirra og kosti til mann- eldis en nú eru þær ásamt fjölmörgum öðrum baunategundum einnig ræktaðar á Vesturlöndum. Neysla bauna til mann- eldis hefur aukist í hinum vestræna heimi. Þar kemur margt til, aukin þekking og aukin samskipti þjóða á milli og áhugi á fjölbreytni í matargerð. Baunir eru hagkvæmar í innkaupum, geymast vel og þær eru fráþært innlegg í heilsusamlegt mataræði. EFNAINNIHALD Baunir eru auðugar af lífsnauðsynlegum næringarefnum svo sem eggjahvítuefnum, trefjaefnum, járni, fosfór, kalíum og B- vítamínum. Fita baun- anna er óvenju auðug af fjölómettuðum fitusýr- um t.d. eru 62% af fitu sojabaunanna fjöl- ómettuð. Fjölómettuð fita hefur æskileg áhrif á líkamann sem m.a. koma fram í lækkun blóðkólesteróls og minni hættu á æða- kölkun. Baunir eru trefjaefnaríkar en trefja- efnin eru hinn ómeltan- legi hluti kolvetna og nauðsynlegur fyrir alla eðlilega meltingar- starfsemi. Þið sjáið að baunir hafa marga góða kosti sem vert er að nýta sér og auk þess sem áður er talið eru þær lútargæf- ar. En lútargæf fæða stuðlar að jafnvægi sýrustigs í líkamanum. Fyrir þá sem hafa áhuga á efnainnihaldi bauna fylgir með kökurit til glöggvunar og gamans af nokkrum baunateg- undum. Þar sjáið þið mismunandi efnainni- hald baunanna og hve gott er að breyta um fæðutegundir til að stuðla að því að líkam- inn fái það sem hann þarfnast. MATREIÐSLA Baunir henta vel m.a. í buff, búðinga, salöt og súpur. Yfirleitt þarf að undirþúa matreiðslu á baunum með því að leggja þær í þleyti í ca. 10 klst. Áður eru baun- irnar hreinsaðar og skolaðar vel úr köldu vatni. Eftir skolun þarf 3- 4 dl af vatni fyrir hvern 1 dl af baunum. Áður en baunirnar eru soðnar skal hella vatninu af sem baunirnar lágu í og skola baunirnar aftur. Það er gert vegna þess að það myndast gerjun í vatninu á meðan baunirnar liggja í bleyti, ef því vatni er fleygt losna margir við upp- þembu sem þeir fá við neyslu bauna. Suðutími bauna er mismunandi, t.d. þurfa linsur ekki nema 30 mín. suðu en algengt er að sjóða baunir í 60-90 mín. Oftast er gefinn upp suðutími á umbúðun- um. Eins og áður sagði er það vel þess virði að prófa sig áfram með matreiðslu á baunum og læt ég fylgja hér með nokkrar uppskriftir sem ég vona að ykkur líki við. Uppskriftirnar gilda fyrir 4-6 manns. Gangi ykkur vel! Kveðja, Hrafnhildur. GRÆNAR BAUNIR LINSUR 15,00% 10'0% HARIKOTBAUNIR Hlutfall efnainnihalds 11,00% nokkurra baunatequnda: 13,00% 17,00% 31

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.