Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 43

Heilsuvernd - 01.03.1991, Side 43
EFTIR ODD ALBERTSSON Oddur Albertsson starfar sem fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Hann hefur beint sjónum sínum að hátterni unglinga, velt fyrir sér af hverju þeir byrji að reykja og reynt að hjálpa þeim sjálfum til þess að finna ástæðurnar. Starfsvettvangur Odds er skólarnir og aðferðir hans eru verðugt umhugsunarefni öllum uppalendum. Hér gefur Oddur okkur nokkra innsýn í starf sitt. UNGLINGURINN OG SÍGARETTAN Eg leyfi mér að fullyrða að nær allir íslenskir unglingar gera sér grein fyrir því að reykingar eru skaðlegar. Samt byrjar ákveðinn hópur þeirra að reykja þegar á efri stigum grunnskólans. Hvers vegna? I starfi mínu með ungling- unum og með samtölum við þau í skólastofunum hef ég leitast við að finna svar við þeirri spurningu. Mig langar til þess að deila með ykkur hluta af þessu starfi en með því hef ég reynt að skapa gagnrýna hugsun hjá unglingunum. GLAPPASKOTIÐ Algengt er að unglingar séu látnir afskiptalausir í íslensku þjóðfélagi. Leiðsögn og stuðningi við að aðlagast í hóp eða kynningu á heimspekilegum þankagangi um gildi lífsins og valkosti er ekki til að dreifa. Unglinginn er því auðvelt að þlekkja og hann verður hugmynd- um hetjunnar í markaðssamfélag- inu að bráð. Gildismatið sem ræður í íslensku samfélagi er hart og lýtur lögmálum samkeppninnar. Afleiðingin er sú að maður neyðist til að taka þátt í þeirri dagskrá sem er í gangi hverju sinni. Flestir falla að ríkjandi hugmyndum hópsins - sem hverjir ætli stjórni? Dagskráin er sem parísarhjól sem sífellt snýst hraðar og hraðar og svo er að sjá að fáir hafi áræði eða kraft til að stöðva það og spyrja hvort einhverjir séu orðnir veikir í maganum. Reykingar eru einn liðurinn á þessari dagskrá. Að byrja að reykja var eitt stærsta glappaskot mannkynsins og það er erfitt að snúa við blaðinu. Nú vitum við að sígarettur eru óhollar og nokkurs konar bannvara sem gerir þær enn eftirsóknarverðari í augum sumra eins og t.d. unglinga. AFURÐIR MYNDVERA Unglingar eru í eðli sínu áhrifagjarnir og nú á tímum er umhverfi þeirra mettað af framleiðslu sem við getum kallað „afurð myndvera (stúdíó)". Hér er átt við kvikmyndir, auglýsingar (í öllum hugsanlegum miðlum), tónlistarmyndbönd, ýmiss konar skemmtidagskrá framleidda í sjónvarpssölum víða um heim og einnig plaköt, blaðaopnur og greinar. Allt þetta efni er búið til af kunnáttufólki með fullkomnustu hugsanlegri tækni. En þarna er verið að skapa heim blekkingar sem oft á tíðum er beinlínis búinn til fyrir

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.