Heilsuvernd - 01.03.1991, Page 46
kvartaði um líðan sína og
viðurkenndi að reykingar hafi verið
hennar mesta böl, eða að í kvik-
mynd kæmu fram tölfræðilegar
staðreyndir sem leiddu í Ijós að
daglega deyja jafnmargir menn
vegna reykinga og rúmast í sex
breiðþotum.
Flestir auglýsendur sýna glit- og
glansheim með „fullkomnu" fólki í
glæsilegu umhverfi og með næga
peninga. Enginn þekkir heim
þennan af eigin raun en margur
gleymir sér um stundarsakir í
dagdraumum.
Það er mjög mikilvægt að benda
unglingum á þessar staðreyndir og
minna þá á að það eru þeir sjálfir
sem skapa framtíð sína. Einungis
með því að leggja inn í
heilsubankann geta þeir tryggt sér
innistæðu.
Unglingurinn þarf á athygli
og virðingu að halda -
jafnvel þótt hann gefi allt
annað til kynna!
Ábyrgðin er okkar, foreldranna,
kennaranna, leiðbeinendanna. Við
verðum að vera vakandi, vekja aðra
og láta ekki sjálf blekkjast.
ÍSLENDINGAR í STRÍÐI
Máttur auglýsinganna er mikill, það
vita þeir best sem leggja í þær
peninga. Besta vörnin gegn
villuleiðandi öflum er sókn, þ.e. að
afhjúpa þá tækni og þær brellur
sem nýttar eru í því skyni að græða
á okkur.
Það þarf áræði til þess að tryggja
stöðugleik hinna siðferðislegu
stólpa samfélagsins og það þarf
áræði til þess að bíða ekki eftir að
stjórnmálamenn eða æðri öfl
leiðrétti það sem miður fer en taka
þess í stað sjálfur til við mótun
samfélagsins.
Sá sem býr yfir þeim kjarki
skilgreinir „óvinina" sem leynast í
ýmsum myndum í þjóðfélaginu, fer
í stríð við þá og hættir ekki fyrr en
breyting hefur orðið til batnaðar.
Þannig lít ég á hlutverk foreldra,
uppalenda, kennara, leiðtoga
félagsmiðstöðva og annarra sem
eru í nánum tengslum við börn og
unglinga.
Ábyrgðin er okkar og við íslendingar
eigum óneitanlega í stríði við ýmsar
villur sem hefur verið lætt inn á
borð til okkar, okkur að óvörum.
Unglingarnir þurfa á athygli okkar
og virðingu að halda og við þurfum
að gefa þeim tíma til þess að ræða
um það sem fyrir þau ber. Þau þurfa
að öðlast hæfileika til að gagnrýna
svo að þau verði fær um að greina
á milli svikinnar vöru og ósvikinnar
og grípi ekki til verkfæra eins og
sígarettunnar sem í fyrstu virðist
yfirlýsing um sjálfstæði en reynist
vera þrældómur.
SEGULKRAFTUR
Dýnur, sængur, stólasessur og nýrnabelti úr fínustu
MERINO og LAMA ull.
Allar vörurnar innihalda ísaumaða segulstrimla af
vönduðustu gerð.
Segulkrafturinn hefur margvísleg jákvæð áhrif á
líkamsstarfssemina.
Bættur svefn og aukið blóðstreymi.
Þýskar rannsóknir sýna fram á góð áhrif á blóðrás og að
segulkrafturinn getur stórbætt súrefnisupptöku frumanna.
Þýsk gæðavara.
Vertu góður við sjálfan þig. Þú átt það besta skilið.
LÍFSKRAFTUR
heildverslun
Laugarnesvegur 84, Sími: 687844
Einnig á kvöldin og um helgar.
46