Fréttablaðið - 18.12.2021, Síða 6

Fréttablaðið - 18.12.2021, Síða 6
benediktboas@frettabladid.is   REYKJAVÍK Reykjavíkurborg mun kaupa 15 þúsund plastmöppur af Múlalundi fyrir um fjórar og hálfa milljón króna. Var það samþykkt í borgarráði í vikunni. Kolbrún Bald- ursdóttir, oddviti Flokks fólksins, fagnaði að borgin væri loks farin að kaupa skólavörur af Múlalundi.. „Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram tillögu í ágúst sl. að skóla- og frístundaráð kaupi skólamöppur frá Múlalundi, en fram til þessa hefur Reykjavíkurborg hunsað Múlalund með öllu, ólíkt öðrum sveitarfélög- um.,“ segir í bókun Kolbrúnar. n Við munum sjá miklu fleiri dæmi um endur- komur og miklu fleiri dæmi um akstursbann en verið hefur. Birgir Hákonarson, Tékklandi Framkvæmda- stjóri Tékklands segist í sjokki vegna íþyngj- andi breytinga sem dæma munu bíla úr leik og stór- fjölga endur- komum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Efnaminni bíleigendur í vanda vegna breytinga á reglugerð um skoðun bíla. Það sem áður var fært sem lítil athugasemd, mun kalla á aðra komu á skoðunarstöð. Víð- tækar heimildir til aksturs- banns. bth@frettabladid.is SAMGÖNGUR Framkvæmdastjóri Tékklands bifreiðaskoðunar segir að eigendur, einkum eldri bifreiða, geti lent í stórauknum vandræðum, akstursbanni og auknum kostnaði við að koma bílum sínum í gegnum skoðun, vegna breytinga á reglugerð sem tekur gildi í vor. Samgöngustofa hefur kynnt regl- urnar á vef sínum, en þær taka gildi 1. maí næstkomandi. Dæmi eru um tilslakanir frá núverandi kerfi, sem dæmi lengri frest til endurskoðunar vegna skorts á varahlutum. Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri Tékklands, gagnrýnir hins vegar breytingar á svokallaðri skoðana- handbók, reglurnar verði mjög strangar. „Við munum sjá miklu fleiri dæmi um endurkomur og miklu f leiri dæmi um akstursbann en verið hefur. Akstursbann er rosalega harkaleg aðgerð,“ segir Birgir. „Við erum líka í sjokki yfir að nú á að dæma bíl í endurskoðun ef vantar númeraljósin,“ bætir hann við. Dæmi um atriði sem mun leiða til akstursbanns er olíuleki. Ef skoð- unarmaður sér dropa falla niður af gírkassa eða vél, ber honum að banna akstur bílsins. Áður féll leki undir endurskoðun. Með aksturs- banni er á ábyrgð eiganda að láta draga bíl burt og láta lagfæra öku- tæki eða farga því. Bilaðar handbremsur og olíulekar leiða til akstursbanns á næsta ári „Það er mjög mikið af gömlum bílum til þar sem það er ekkert auðvelt að stoppa olíuleka. Olíuleki hefur ekki áhrif á umferðaröryggi,“ segir Birgir. Annað dæmi um akstursbann varðar bilaða handbremsu. „Ef handbremsa er óvirk sem er mjög algengt af því að fólk n o t a r hana ekki, þá verður a k s t u r s b a n n . V ið vitum að handbrems- an er neyðarhemill, en ég veit engin dæmi þess að bíll verði bæði handbremsu- og fót- bremsulaus,“ segir Birgir. Reg lugerðin er hluti af tilskip- un Evrópulanda. Sér- hvert land hefur þó svigrúm til að koma með til- lögur að breytingum á atriðum sem leiða til akstursbanns. Birgir telur að Samgöngustofa og íslensk stjórn- völd hafi vannýtt að reyna að koma undanþágum í gegn. Þá gagnrýnir framkvæmdastjóri Tékklands að skoðunarmönnum beri framvegis að tilkynna grun- samlega stöðu akstursmælis til Samgöngustofu. Hann undrast að Samgöngustofa sinni ekki því eftir- liti sjálf, enda „dæli skoðunarstöðv- ar upplýsingum til samgöngustofu“, eins og hann orðar það. Stofnunin ætti sjálf að geta unnið úr þeim upplýsingum. Birgir segir engan vafa leika á að breytingarnar komi harðast niður á efnaminni bíleigendum, sem eigi gamla bíla sem þarfnist viðhalds. „Okkur finnst þetta rosalega harkalegt, það geta orðið veruleg vandræði hjá fólki sem missir heim- ilisbílinn út af einhverri óheppni.“ n Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. bth@frettabladid.is SVEITARSTJÓRNARMÁL Formaður Sambands sveitarfélaga, Aldís Haf- steinsdóttir, segir að bág fjárhags- staða margra sveitarfélaga kunni að hafa áhrif á vilja landsmanna til framboðs í sveitarstjórnir. „Við höfum þegar dæmi um að kosið hafi verið óhlutbundið og enginn framboðslisti. Staðan er ekki góð. En sem betur fer er þó fjöldi sveitarfélaga að gera góða hluti, mikið um að vera og sóknar- hugur í fólki. En okkur vantar peninga til að sinna þeim verk- efnum sem ríkisvaldið hefur sent til okkar,“ segir Aldís. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hafa langf lest sveitarfélög tekið upp hæstu mögulega útsvars- prósentu fyrir utan örfáa hreppa sem hafa stórtekjur af virkjunum, stóriðju eða sumarbústöðum. Hámarksskattlagning er 14,52 pró- sent. Aldís segir að fremur en að krefj- ast lagaheimildar til að hækka útsvarsþakið enn frekar, þurfi sveitarfélög nýja tekjustofna og aukið fé með málaflokkum. Útsvar, jöfnunarsjóður sveitarfélaga og fasteignagjöld, dugi ekki til. Ekki síst vanti aukið fé í málaflokk fatl- aðs fólks. Stór hluti sveitarfélaga sé ekki sjálf bær rekstrarlega. „Rekstrargrunnur sveitarfélaga er mjög mismunandi, en á sama tíma erum við ein þjóð í einu landi og viljum öll njóta svipaðrar þjón- ustu. Í kerfinu sem við búum við núna ríkir gríðarleg mismunun þegar kemur að tekjum sveitar- félaga. Það er að teiknast upp grafalvarleg staða. Hún mismunar íbúum og möguleikum fólks til að lifa blómlegu lífi.“ Aldís vísar máli sínu til stuðn- ings til aðstöðumunar hvað varðar tekjur af fasteignagjöldum af virkj- unum, opinberum byggingum og öðru slíku. n Bágur fjárhagur sveitarfélaga minnki framboðsáhuga fólks arib@frettabladid.is REYKJAVÍK Fossvogsskóla hafa bor- ist tilkynningar um að nemendur finni fyrir einkennum vegna myglu í tímabundnu húsnæði skólans í Korpu í Grafarvogi. Fram kemur í bréfi Hafdísar Guðrúnar Hilmars- dóttur, skólastjóra, til foreldra, að þrjár tilkynningar hafi borist, síðast á fimmtudag sem tengist heimilis- fræðistofunni. Segir einnig að verkfræðistofan Efla muni koma í húsnæðið milli jóla og nýárs til að mæla og meta framhaldið. n Mæla húsnæðið milli jóla og nýárs Borgin kaupir loks af Múlalundi Kolbrún Baldurs- dóttir, oddviti Flokks fólksins 6 Fréttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.