Fréttablaðið - 18.12.2021, Side 16
Magnaðast þykir mér
þó að leggjast á bakið í
eitt af skörðunum og
horfa til himins. Þá
fljúga múkki og rita
yfir hausnum á manni
eins og orrustuþotur.
Tómas Guðbjartsson, hjarta-
skurðlæknir
Náttúruverndarsinnar munu
minnast ársins 2021 fyrir frið-
lýsingu Dranga á Ströndum
norður, en ákvörðun Guð-
mundar Inga Guðbrands-
sonar, þáverandi umhverfis-
ráðherra í þá veru, á síðustu
dögum sínum í því embætti,
þótti djörf og snöfurmannleg,
svo og söguleg, en jörðin
Drangar er þar með fyrsta
landsvæðið á Íslandi sem frið-
lýst er sem óbyggt víðerni.
ser@frettabladid.is
VESTFIRÐIR Friðlýsta svæðið nær frá
Drangaskörðum, sunnan jarðarinn-
ar Dranga, að Bjarnarfjarðará í sam-
nefndum firði neðan Drangajökuls
og er alls 105 ferkílómetrar að stærð,
en þar af eru níu ferkílómetrar í hafi.
Í nafni síðustu bænda
Elías Svavar Kristinsson, sjómaður,
sem ættaður er af Dröngum, var
ásamt bræðrum sínum einn helsti
hvatamaður að friðlýsingu Dranga í
minningu foreldra sinna, hjónanna
Önnu Jakobínu Guðjónsdóttur og
Kristins Halls Jónssonar, sem voru
síðustu bændur á Dröngum.
Elías segir það einfaldlega hafa
verið skyldu Drangamanna að búa
svo um hnútana að landshlutinn
norðan skarða verði upprunalegur
um aldur og ævi. „Af komendur
okkur eiga skilið að njóta náttúru-
upplifunar svæðisins í sama mæli
og við sem komum á undan,“ segir
hann og minnir á að hans kynslóð
sé farin að berja nestið.
Gjöful jörð
Hann segir jörðina einstaka á marga
vegu, auðvitað við ysta haf og utan
vegarsambands, en hún sé einnig
áminning um hvernig forfeðurnir
lifðu í afskekktustu sveitum lands-
ins.
Og hann sýtir ekki hlutskipti
æskunnar þegar um 20 manns
bjuggu að Dröngum við atlæti gott,
enda matinn um allt að finna, selinn
í f læðarmálinu, fiskinn þar utar,
hvalinn hér áður fyrr og ekki hafi
fuglatekjan norður í Hornbjargi
verið lítil búbót fram eftir sumri,
en þess utan hafi grónar kvosirnar
í grennd við bæinn verið upplagðar
til fjárræktar.
Hátt verndargildi
Í tilkynningu stjórnvalda um frið-
lýsingu Dranga segir að umrætt
svæði austan Drangajökuls sé
hluti af víðáttumiklu, samfelldu,
óbyggðu víðerni á Vestfjörðum.
Verndargildi svæðisins sé mjög
hátt á bæði íslenskan og alþjóðlegan
mælikvarða og felist fyrst og fremst í
víðerni, tilkomumiklu landslagi og
náttúruupplifun.
Undir þetta tekur Tómas Guð-
bjartsson, hjartaskurðlæknir, sem
talað hefur fyrir friðlýsingu merki-
legra náttúruvætta á Íslandi í ára-
raðir. „Drangavík er með fallegustu
Friður sé með
Dröngum
Drangaskörð í öllu sínu veldi. Norðan þeirra er landnámsjörð Eiríks rauða að finna og þar fæddist að líkindum Leifur sonur hans heppni.
Elías Svavar rær frá Dröngum á hverju sumri og leggur
upp í Norðurfirði, en hann er alinn upp á Dröngum .
Engum leiðist
að líta Dranga-
skörðin augum.
Þar undir voru
verbúðir á
öldum áður,
en stutt var
þaðan að róa til
gjöfulla fiski-
miða.
Bærinn Drangar
á ystu mörkum
Íslandsbyggðar,
en þar var byggð
til 1966 og búið
þar áður, með
hléum, frá því
Eiríkur rauði var
og hét.
MYNDIR/TG/ÓMB
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
tjaldstæðum á landinu. Fjaran er
skreytt rekaviðardrumbum og
þarna er auðvelt að finna fallegt
tjaldstæði innan um þá með fal-
legasta útsýni að Dröngunum.“
Ósnortin náttúra
Hann mælir með að ganga út eftir
skörðunum, en enn skemmtilegra sé
að ganga í gegnum eitthvert þeirra.
„Magnaðast þykir mér þó að leggj-
ast á bakið í eitt af skörðunum og
horfa til himins. Þá fljúga múkki og
rita yfir hausnum á manni eins og
orrustuþotur.“
Og Tómas bætir við. „Það er þessi
heild og ósnortna náttúra sem er
svo heillandi. Einstakir fossar úti
um allt sem flestir eru nafnlausir
en inn á milli frægari fossar eins og
Hvalárfoss, Eyvindarfjarðarfoss,
Drynjandi og Rjúkandi.“ n
Á AÐ SKELLA SÉR
Í BREKKURNAR
Í JÓLAFRÍINU?
AF SKÍÐAPÖKKUM FRAM AÐ JÓLUM
*Afsláttur gildir ekki með öðrum tilboðum
16 Fréttir 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ