Fréttablaðið - 18.12.2021, Side 18
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
En báknið
vex meira
en allt
annað á
þessum
markaði.
Ríkisstarfs-
mönnum
fjölgar sem
aldrei fyrr.
En kúkur
er á ýmsu
formi.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
595 1000
Gefðu góðar minningar
Jólagjafabréf Heimsferða komin í sölu!
10.000 og færð 15.000
20.000 og færð 30.000
40.000 og færð 60.000
Ólíkt hafast þeir að, Seðlabanki
Evrópu og Seðlabanki Íslands, en
sá fyrrnefndi vill alls ekki ógna
stöðugleikanum með vaxtahækk-
unum á óvissutímum, á meðan sá
síðarnefndi hækkar vextina ítrekað, úr 0,5 pró-
sentum í 2 prósent á skömmum tíma.
Meginrök evrópska Seðlabankans fyrir því
að halda vöxtunum áfram í 0,0 prósentum eru
þau að álag farsóttarinnar á hagkerfið séu tíma-
bundin, áhrifin muni fjara út, en engin ástæða sé
til að fara efnahagslega á taugum þegar geta og
sjálfbærni hagkerfisins liggi fyrir, hækkun vaxta
veiki það meira en styrki.
Hjá íslenska Seðlabankanum eru rökin önnur,
en slá þurfi á putta verðbólguhvatans sem
einkum stafi af hækkun íbúðaverðs. Áhrifin
eru augljós: Annar tveggja helstu kostnaðarliða
atvinnulífsins, á eftir launum, er fjármagns-
kostnaður, en hækkun hans mun fara rakleiðis
út í verðlagið. Og það eykur verðbólgu, fyrir nú
utan hitt, að hærri vextir ræna heimilin í landinu
upp undir 50 þúsundum á mánuði vegna vaxta á
íbúðalánum.
Hækkun vaxta er nefnilega verðbólguhvetj-
andi. Hækkun vaxta veldur fyrirtækjunum erfið-
leikum. Og hækkun vaxta bitnar á heimilunum.
En þetta er dæmigert. Alltaf skal Íslendingur-
inn tapa í ófyrirsjáanlegasta hagkerfi álfunnar.
Allir tapa er nefnilega átak sem er séríslenskt
fyrirbæri. n
Ríkis-stjórnin
Ríkisstjórnum hættir til að vera ríkissinnaðar,
hampa ríkisrekstri fremur en einkarekstri, hlaða
undir embættismennskuna fremur en almennan
vinnumarkað. Og hættan er einkum sú að setja
nýja stofnun á fót sem flýtur hægt og sofandi að
feigðarósi, en eftir situr í flæðarmálinu einhver
hópur ríkisstarfsmanna sem þarf á nýjum verk-
efnum að halda.
Ríkisvæðingin er regla, fremur en að gefa
einkafyrirtækjunum aukið svigrúm og súrefni,
en þau eru hryggjarstykkið í íslensku atvinnulífi
og forsenda velferðar í landinu.
En báknið vex meira en allt annað á þessum
markaði. Ríkisstarfsmönnum fjölgar sem aldrei
fyrr. Og þótt sterk og öflug opinber þjónusta sé
mikilvæg á svo mörgum póstum er líka spurning
hvort hún hafi runnið sitt skeið á öðrum sviðum.
Ríkisstjórnarbræðingur hægri- og vinstri-
manna í landinu gæti verið upplagður kokteill að
enn frekari ríkisumsvifum. Með því verður fylgst
næstu fjögur árin. n
Allir tapa
Embættismenn í þýsku borginni Potsdam
gerðu vandræðalega uppgötvun nýverið. Í
ljós kom að Joseph Göbbels, hinn alræmdi
áróðursmálaráðherra nasista, var enn á lista
yfir heiðursborgara Potsdam. Göbbels hafði
verið sæmdur titlinum árið 1938. Í lok síðari
heimsstyrjaldarinnar voru framámenn
nasistaflokksins á borð við Hitler og Göring
sviptir heiðursborgarasessi. Fyrir slysni fékk
Göbbels hins vegar að halda nafnbótinni í
75 ár eftir andlát sitt.
Gjarnan er sagt að rjóminn rísi upp á topp.
Það gerir kúkurinn í lauginni líka.
„Teflt við páfann”
Fyrstu vatnsklósettin sem vitað er um eru frá
um 2800 fyrir Krist, en leifar þeirra fundust
í Indusdalnum þar sem nú er Pakistan. Upp-
finningunni var þó lengi mætt með tregðu. Á
16. öld efaðist fólk enn um tækninýjungina,
þegar guðsonur Elísabetar I. Englandsdrottn-
ingar hannaði klósett og gaf henni. Sagan
segir að drottningin hafi kunnað illa við
lætin sem heyrðust þegar hún sturtaði niður;
hún vildi ekki að öll hirðin vissi af því þegar
hún tefldi við páfann.
Enn árið 2021 valda eigin hægðir hinum
viti borna manni höfuðverk. Milljarðamær-
ingurinn Elon Musk var í vikunni valinn
maður ársins af tímaritinu Time. Musk, sem
þekktur er fyrir að reka rafbílaframleiðand-
ann Tesla og geimferðafyrirtækið Space-X,
gefa skít í skattheimtu og sóttvarnaaðgerðir
og skrifa svo kraftmiklar Twitter-færslur
(á klósettinu að eigin sögn) að þær valda
brimróti á verðbréfamörkuðum, komst að
því nýverið að háleitustu plön eru ekki hafin
yfir lægstu þarfir. „Við þurfum að endur-
bæta klósettin,“ skrifaði Musk á Twitter eftir
geimskot SpaceX í september, þegar fyrstu
ferðamennirnir á vegum fyrirtækisins voru
sendir út í geim, og skólp ógnaði geim-
skutlunni.
En kúkur er á ýmsu formi.
Handleggur eða hakakross
Uppskeruhátíð þeirra, sem skara fram úr að
visku, gæsku eða atgervi, er gengin í garð.
Landsmönnum gefst nú kostur á að tilnefna
manneskju ársins í hinum ýmsu fjölmiðlum.
Deyr fé, deyja frændur; öllum er annt um
orðstírinn. Breski blaðamaðurinn Will Storr
heldur því fram að praktísk ástæða liggi þar
að baki. Í nýrri bók, The Status Game, færir
Storr rök fyrir því að óþrjótandi þörf okkar
fyrir metorð stýri allri mannlegri hegðun.
Ástæðan sé sú að mannkynið lifði af með því
að vinna saman í hópum. Þeir einstaklingar,
sem gátu áunnið sér virðingu hópsins,
uppskáru mesta velgengni. Þeir lifðu meira
að segja lengur, því metorðum fylgdi meiri
matur, stærri landsvæði og betri heilsa.
Vegtyllur bæði Göbbels og Musk eru
umdeildar. Markmiðið með slíkum viður-
kenningum er þó ljóst. Með því að hefja þá
til metorða sem taldir eru hafa með fram-
ferði sínu orðið heildinni að gagni, sjáum við
hin ávinning þess að breyta rétt. En hvers
vegna færum við okkur ekki í not hina hlið
sama penings?
Samkvæmt Storr veldur fátt meiri angist
en að færast niður metorðastigann. Könnun
sýndi að 70 prósent Bandaríkjamanna
myndu heldur láta taka af sér annan hand-
legginn en húðflúra hakakross á ennið á sér.
Í stað þess að velja manneskju ársins, af
hverju ekki að velja kúk ársins og þannig letja
þá, sem hneigjast til framferðis sem skaðar
hagsmuni heildarinnar, frá slíkri hegðun?
Listi yfir tilnefningar gæti innihaldið:
n Blóðmerabændur sem tappa blóði af fyl-
fullum hryssum svo að sæða megi gyltur í
svínabúum aðeins örar.
n Skæruliðadeild sjávarútvegsfyrirtækisins
Samherja sem seldi sál sína fyrir sæmilega
borgaða innivinnu.
n KSÍ.
n Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis.
Hvern tilnefnir þú kúk ársins? n
Hvern tilnefnir þú?
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 18. desember 2021 LAUGARDAGUR