Fréttablaðið - 18.12.2021, Síða 35
Hún taldi þau Aristotle
ekki efni í hjón. Enda
var hún gríðarlega
upptekin af því að ráða
sér og sínu lífi sjálf og
hún talar um það í
bókinni að með
Alberto hafi hún ráðið
ferðinni.
Sæunn
Sonja de Zorilla
var sannur
heimsborgari
sem þó hélt
tengingu við
föðurlandið og
varði síðustu
árunum hér.
samband þeirra hafi verið óhefð-
bundið. „Þau áttu í opnu sambandi
og áttu í sínum ástarsamböndum
við aðra og eignuðust aldrei börn.“
Hvað varð um milljarðana?
Aðspurðar hvort barnleysið hafi
verið val þessarar sjálfstæðu konu
verður Sæunn fyrri til svars.
„Hún gefur það sterklega til
kynna í bókinni að hana hafi ekki
langað í börn og Alberto hafi verið
samþykkur því. En hún segist líka
hafa upplifað eftirsjá þegar árin
færðust yfir enda lifir hún löngu lífi
og er 86 ára þegar hún deyr. Vinirnir
voru margir eldri en hún og voru þá
fallnir frá. Margir lýstu henni sem
barnagælu og hún lagði mikið upp
úr vinskap við börn systur sinnar
og vina.“
Það var svo ósk Sonju að auðæfi
hennar rynnu í sjóð sem styrkja
skyldi langveik börn hérlendis og í
Bandaríkjunum og fól hún frænda
sínum, Guðmundi Birgissyni frá
Núpum, stjórn hans ásamt lög-
fræðingnum John Ferguson.
„Það hefur aðeins verið fjallað um
þetta í fjölmiðlum og Kompás gerði
mjög góðan þátt árið 2007 sem við
erum svolítið að fylgja eftir, en það
virðist lítið hafa runnið úr sjóðnum.
Við erum aðeins að reyna að svara
því hver raunverulegur auður
hennar var,“ segir Sæunn en sam-
kvæmt bókinni Ríkir Íslendingar
ætti núvirði hans að vera í kringum
24 milljarða króna. „Eins leitum
við svara við því hvað hafi orðið af
þessum peningum.“
Coco Chanel og Chaplin
Þær eru sammála um að það sem
hafi kveikt áhuga þeirra hafi verið
merkilegt lífshlaup Sonju. „Hún var
sjálfstæð kona á þessum tíma sem
konur voru í raun og veru ekki svo
sjálfstæðar,“ segir Katrín.
„Hún var frumkvöðull,“ segir
Sæunn og Katrín bætir við að þær
reyni að draga það fram í þáttunum
hversu merkileg útþrá og ferðalög
Sonju hafi verið á Íslandi þess tíma,
þegar skipaferðir til landsins voru
fréttaefni.
„Hún minnist þess í ævisögunni
að þegar hún var 15 ára í Mennta-
skólanum í Reykjavík hafi aðal-
áhuginn legið í að sjá Chaplin í bíó
og lesa í tímaritum um Coco Cha-
nel. Ekkert svo löngu síðar er hún
svo mætt á tískusýningar hjá Cha-
nel í París og farin að hitta Chaplin
í boðum í New York,“ segir Sæunn.
Aftur heim til Íslands
Sonja, sem hafði kvatt Ísland 17 ára,
árið 1933, hélt þó alltaf tengslum
og varði meiri tíma hér á landi á
níunda og tíunda áratug síðustu
aldar. Árið 1998 flutti hún svo alveg
heim til Íslands, hún hafði keypt sér
sumarbústað á Þingvöllum á átt-
unda áratugnum og síðar íbúð við
Eiðistorg, og fór að rifja upp kynni
við íslenska ættingja, meðal annars
fyrrnefndan Guðmund frá Núpum,
en hún keypti sér einmitt land við
Núpa og byggði sér þar hús.
„Hún átti litla fjölskyldu, þegar
faðir hennar fellur frá f lytja systir
hennar og móðir til Bandaríkjanna.
Þrátt fyrir þetta finnur hún þessa
sterku tengingu við Ísland og ver
hér síðustu árum sínum. Hún var
mjög hrifin af Esjunni og þar sem
hún bjó á efstu hæð gat hún séð
Esjuna og stillti þar upp öskunni
hans Alberto sem hafði heimsótt
Ísland með henni og einnig hrifist
af Esjunni,“ segir Sæunn.
En hvers vegna ætli þær hafi feng-
ið svo mikinn áhuga á konu sem lést
áður en þær fæddust og var mikið
eldri en ömmur þeirra og afar?
„Afi minn lánaði mér bókina og
við hefjum þáttaröðina á spjalli við
hann þar sem hann lýsir því þegar
hann hitti Sonju árið 1976. Hann
hafði aldrei heyrt á hana minnst en
varð strax heillaður af henni,“ segir
Sæunn og Katrín samsinnir því:
„Hún hafði þessi áhrif á fólk – heill-
aði það upp úr skónum.“
Í þáttunum má líka heyra rödd
Sonju sjálfrar en Ríkisútvarpið
hefur varðveitt tvö viðtöl við hana
frá árunum 1976 og 1994.
„Nú eru komin tæp 20 ár frá því að
ævisagan kom út svo það er komin
heil kynslóð sem þekkir Sonju ekki
og okkur langaði að segja sögu
merkilegrar íslenskrar konu. Þetta
var kona sem stefndi hátt og fór alla
leið,“ segir Katrín að lokum. n
Opið laugardaginn 18. desember frá kl. 11 til 16.
Opið sunnudaginn 19. desember frá kl. 13 til 16.
Opið virka daga frá kl. 9 til 18.
Jólabæklinginn okkar er hægt að skoða á sminor.is
Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði.
Jól 2021
Uppþvottavélar,
iQ300
SN 43HS32UE (stál)
12 manna. Sex kerfi, þar á meðal
hraðkerfi á 65° C (klukkustund).
Fjögur sérkerfi.
Fullt verð: 109.900 kr.
Jólaverð (stál):
87.900 kr.
Þvottavél, með inn-
byggðum þurrkara,
iQ500
WN 44A1C0DN
Tekur mest 10 kg í þvott, 6 kg í þurrkun.
Hljóðlátur, kolalaus mótor með 10 ára
ábyrgð.
Fullt verð: 209.900 kr.
Jólaverð:
164.900 kr.
Töfrasproti
MSM 66150
600 W. Skál, þeytari og hakkari fylgja
með.
Fullt verð: 12.900 kr.
Jólaverð:
9.900 kr.
Matvinnsluvél
MCM 3110W
800 W.
Fullt verð: 13.900 kr.
Jólaverð:
10.900 kr.
Carat
Loft-/veggljós
AN16103-15-04
Fullt verð: 19.900 kr.
Jólaverð:
14.900 kr.Ryksuga,
Serie 2
BGL 2POW1
Vinnuradíus: 8 m. Hljóð: 80 dB.
Fullt verð: 27.900 kr.
Jólaverð:
21.900 kr.
Helgin 35LAUGARDAGUR 18. desember 2021 Fréttablaðið