Fréttablaðið - 18.12.2021, Side 39
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
Verslunin hefur
farið mjög vel af
stað. Kultur menn er
fyrir alla karlmenn yfir
tvítugt. Stærsti hópur-
inn er á aldrinum 30-60
ára en okkur þykir vænt
um að sjá alla aldurs-
hópa.
LAUGARDAGUR 18. desember 2021
Starfsmenn nýrrar verslunar, Kultur menn, í Smáralind. Valtýr Helgi Diego (fremst), Björn Sveinbjörnsson, Jóhann Karl Ásgeirsson, Jóel Þór Jóelsson, Hrafnkell
Diego og Birgir Einar Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Last Christmas er uppáhalds jólalag
hunda. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
oddurfreyr@frettabladid.is
Uppáhalds jólalag hunda er Last
Christmas með Wham!, sam-
kvæmt könnun sem góðgerðar-
samtökin Guide Dogs UK gerðu, en
1.000 hundaeigendur tóku þátt.
Last Christmas fékk 10 prósent
atkvæða, en næst á eftir kom Jingle
Bells með 9 prósent atkvæða og All
I Want for Christmas is You með
Mariah Carey, sem fékk 6 pró-
sent atkvæða. Önnur lög sem eru
vinsæl hjá hundum eru Driving
Home for Christmas með Chris
Rea, It’s Beginning to Look a Lot
Like Christmas með Michael Bublé
og A Wonderful Christmas Time
með Paul McCartney.
Þátttakendur í könnuninni
sögðu að hundarnir þeirra væru
hrifnir af hressandi lögum með
hröðum takti, frekar en rólegum,
hægum lögum eða lögum með
engum söng.
Tónlist róar hunda
Yfirgnæfandi meirihluti þátt-
takenda, eða 90 prósent, sögðu að
hundar væru hrifnir af tónlist og
að hún gæti haft ólík áhrif á þá, allt
frá því að hressa þá við (23 prósent)
að því að hjálpa þeim að sofna (11
prósent). Fjórðungur hundaeig-
endanna sagði líka að tónlist kæmi
að gagni við að hjálpa hundum
að vera rólegir eða líða þægilega.
Þetta getur verið sérlega gagnlegt
um jólin, þegar rútína margra
hunda breytist, og um áramótin,
þegar flugeldalætin byrja. n
Hundar elska
Wham!
Kultur menn nú líka í Smáralind
Kultur menn var opnuð nýlega á annarri hæð í Smáralind en verslunin er einnig í Kringl-
unni. Kultur menn leggur áherslu á vandaðan fatnað fyrir herra sem vilja vera vel klæddir.
Björn Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri NTC, segir að
mikill uppgangur sé í Smáralind
en fyrirtækið hefur rekið þrjár
verslanir þar undanfarin tíu ár.
„Okkur fannst vanta meira af
flottum herrafatnaði í Smáralind
en við höfum rekið Kultur menn
í Kringlunni í 15 ár. Kultur menn
var fyrst opnuð á Laugaveginum
árið 2005 en flutti í Kringluna 2006.
Verslunin á marga fasta viðskipta-
vini sem geta nú valið um tvo staði
til að versla á.“
Björn segir marga hafa viðrað þá
hugmynd að setja upp Kultur menn
í Smáralind. „Við ákváðum að láta
slag standa og sjáum ekki eftir því.
Verslunin hefur farið mjög vel af
stað. Kultur menn er fyrir alla karl-
menn yfir tvítugt. Stærsti hópurinn
er á aldrinum 30-60 ára en okkur
þykir vænt um að sjá alla aldurs-
hópa. Við fáum líka þó nokkuð af
enn eldri flottum mönnum og það
er sannarlega gaman að sjá hversu
karlmenn á Íslandi eru farnir að
huga vel að klæðnaði sínum og
tilbúnir til að prófa nýja liti,“ segir
Björn og bætir við að tekið sé vel á
móti öllum í versluninni.
Golffatnaður frá J. Lindeberg
„Við leggjum mikið upp úr að veita
afburðaþjónustu, erum með breitt
úrval af fatnaði, jafnt í verði sem
útliti. Verslunin býður gott úrval af
fínni merkjum í þremur verðflokk-
um svo allir geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Þá erum við jafnframt
með umboð fyrir hið vinsæla golf-
merki J. Lindeberg fyrir dömur og
herra og erum með sérstakt horn í
nýju búðinni sem er eingöngu með
golffatnað. Því hefur verið gríðar-
lega vel tekið enda margar jóla-
gjafir þar að finna fyrir golfarann,“
segir Björn og bætir við:
„Það er gaman að segja frá því
að einn besti kylfingur landsins,
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,