Fréttablaðið - 18.12.2021, Page 40
ritaði nýlega undir samning við
J. Lindeberg við hátíðlega athöfn
í nýju Kultur menn versluninni
í Smáralind. J. Lindeberg er einn
helsti söluaðili kven- og karla-
línu í golfi á Íslandi. Ólafía hefur
lengi verið ein fremsta íþrótta-
kona Íslands en hún var meðal
annars kosin íþróttamaður
ársins árið 2017 og er margfaldur
Íslandsmeistari í höggleik. Það er
sannkallaður heiður að fá þessa
glæsilegu íþróttakonu til liðs við
J. Lindeberg og við hlökkum til
að styðja við hennar vegferð og
fylgjast með henni á vellinum á
nýju ári,“ segir Björn.
Vel klæddir á jólum
„Önnur glæsileg og þekkt merki
sem eru vinsæl hjá Kultur menn
eru Tiger of Sweden, Paul Smith,
Eton, Samsøe Samsøe, Matini-
que, Tommy Hilfiger, Diemme,
Hundred og Royal Republic auk
golffatnaðarins frá J. Lindeberg.
Mér sýnist að herrarnir séu frekar
að kaupa sér sparifatnað núna
en venjulega seljum við meira af
hversdagsfatnaði. Það eru margir
að fá sér ný jólaföt og mun fleiri en
fyrir jólin í fyrra.“
Þegar Björn er spurður hvers
konar fatnað fólk sé helst að velja
til jólagjafa, svarar hann: „Það
er alltaf vinsælt að gefa fallegar
peysur, skyrtur, buxur, trefla og
síðan vandaða skó. Við vorum
meðal annars að taka inn nýtt
merki í handgerðum ítölskum
skóm, Brecos, og sjáum strax að
þeir eru að fara í jólapakkana.
Við erum búin að vera að fá svo
mikið af fallegum vörum núna í
desember svo það er nóg til.“
Fagleg ráðgjöf
Björn bendir á að veitt sé persónu-
leg ráðgjöf í Kultur menn og það
kunni fólk vel að meta. „Herrarnir
vilja koma í verslunina og eiga
gott spjall við starfsmenn sem
þekkja vöruna vel og vita hvað
hentar hverjum og einum. Það
virðast vera fatajól núna, mjög
margir eru að kaupa fallegan
fatnað til gjafa. Ég get nefnt að í
Kultur menn er mikið úrval af
glæsilegum frökkum og jökkum.
Matinique frakkarnir hafa alltaf
slegið í gegn enda vandaðir en á
sama tíma á svo fínu verði. Paul
Smith er dýrasta merkið okkar og
eru karlmenn mjög hrifnir af því
líka. Tiger of Sweden er að okkar
mati eitt mest kúl jakkafatamerkið
og skyrturnar flottar. Þá get ég
líka nefnt frábærar gjafir eins og
Paul Smith strigaskó í hvítu sem
hafa verið mjög vinsælir, sömu-
leiðis fínni buxur sem eru með
teygjanleika og mjög þægilegar frá
Matinique og Eton skyrturnar. Allt
vörur sem hafa verið afar vinsælar
að undanförnu,“ upplýsir hann.
„Við íslenskir karlmenn erum
farnir að kunna vel við okkur í
fallegum litum. Við viljum vera vel
klæddir og höfum meiri áhuga á
tískunni í dag en áður. Vel klæddur
herra er miklu öruggari með sig
enda gefur góður fatastíll sjálfs-
traust. Til dæmis hafa brúnir skór
verið lengi í tísku og alltaf vinsælir.
Ætli megi ekki segja að dökkblátt,
mosagrænt og brúnt séu litir sem
hafa verið söluhæstir. Það er frá-
bært að sjá hvað karlar eru orðnir
meðvitaðir um tískuna,“ segir
Björn. n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Nýja verslunin í Smáralind er glæsileg og með mikið úrval af fallegum jólafatnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Verslunin er fallega hönnuð. Til hægri sést golfdeildin fyrir dömur og herra.
J. Lindeberg er
þekkt vöru-
merki í golf-
fatnaði. Kultur
menn býður
upp á mikið
úrval af glæsi-
legum golf-
fatnaði.
Kultur menn er
á efri hæðinni í
Smáralind.
Stefán Arnar Stefánsson, Haukur Jónsson og Þórður Úlfar Ragnarsson eru
starfsmenn Kultur menn í Kringlunni og taka vel á móti gestum þar.
J. Lindeberg er
einn helsti sölu-
aðili kven- og karlalínu
í golfi á Íslandi.
Við íslenskir
karlmenn erum
farnir að kunna vel við
okkur í fallegum litum.
Við viljum vera vel
klæddir og höfum meiri
áhuga á tískunni í dag
en áður.
2 kynningarblað A L LT 18. desember 2021 LAUGARDAGUR