Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 48
Vöruhönnuður (Product Design Manager)
Við leitum að öflugum fagurkera með næmt auga fyrir
straumum og stefnum í vöruhönnun. Starfið felst í hönnun
vörulínu og umbúða auk hönnunar á framstillingum BIOEFFECT
í verslunum á heimsvísu. Viðkomandi mun m.a. taka þátt í
framþróun vörulínunnar, annast verkefnastjórn og sjá um
samskipti við birgja og þjónustuaðila, auk þess að sinna
grafískum verkefnum innan markaðsdeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Að minnsta kosti 3-5 ára reynsla af vöru- og grafískri hönnun
Reynsla af verkefnastýringu
Þekking og áhugi á hönnun (grafískri hönnun, vöruhönnun,
þrívíddarhönnun o.s.frv)
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og góðir samstarfshæfileikar
Mjög góð kunnátta í Adobe forritum sem og góð almenn tölvukunnátta
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Er fagurfræði þitt fag?
BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I Kópavogi I bioeffect.is
Sótt er um á alfred.is til og með 2. janúar 2022.
Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Austmann, framkvæmdastjóri
markaðssviðs, elisabet.austmann@bioeffect.com.
Hugsa stórt. Akta strax. Allar umsóknir skulu berast í gegnum umsóknarvef Alfreðs I alfred.is
Sjóðstjóri
alþjóðlegra
hlutabréfa
Akta leitar að einstaklingi í teymið til að starfa sem sjóðstjóri alþjóðlegra hlutabréfa. Um er að ræða tækifæri til að ganga til liðs við
ört stækkandi sjóðastýringarfyrirtæki í fremstu röð. Akta er með breitt úrval sjóða og nema eignir í stýringu félagsins yfir 60 ma.kr.
Akta er öflugt fjármálafyrirtæki
sem býður fjölbreytt úrval
sjóða sem ávaxta fjármuni
einstaklinga, fyrirtækja og
fagfjárfesta.
Þekking og reynsla
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Víðtæk þekking á alþjóðlegum fjármálamörkuðum
• Víðtæk þekking á fjárfestingum í skráðum eða óskráðum
erlendum hlutabréfum
• Að lágmarki 2 ára starfsreynsla á erlendum mörkuðum,
helst í fjárfestingarhlutverki
• Sjálfstæð vinnubrögð og góð færni í mannlegum samskiptum
• Próf í verðbréfaviðskiptum æskilegt en ekki nauðsynlegt
Verkefni
• Fjárfestingar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum
• Greiningar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hlutabréfum
• Gjaldeyris- og áhættustýring
• Samskipti við viðskiptavini
• Tilfallandi verkefni
Allar umsóknir skulu berast í gegnum umsóknarvef Alfreðs (alfred.is).
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum er unnt að senda póst á netfangið
umsokn@akta.is. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem
trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2022.
4 ATVINNUBLAÐIÐ 18. desember 2021 LAUGARDAGUR