Fréttablaðið - 18.12.2021, Qupperneq 55
Norræna húsið auglýsir tvö störf á sviði
kynningarmála og verkefnastjórnunar
Norræna húsið í Reykjavík er vettvangur norrænna lista, menningar,
tungumála og þjóðfélagsumræðu og býður upp á framsækna og
þýðingarmikla dagskrá á sviði lista, bókmennta og samfélagslegra
málefna allan ársins hring. Öll okkar starfsemi hefur sjálfbærni að
leiðarljósi og leggjum við áherslu á jafnrétti og margbreytileika.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Við
leggjummikla áherslu á að þú sért skapandi og lausna‐
miðaður. Þú þarft bæði að geta unnið sjálfstætt og vera
góður og traustur liðsmaður. Reynsla af norrænu samstarfi
er kostur.
Við bjóðum tímabundinn ráðningarsamning til fjögurra ára
meðmöguleika á fjögurra ára framlengingu samkvæmt
reglumNorrænu ráðherranefndarinnar. Upplýsingar um
starfsemi Norræna hússins eru áwww.nordichouse.is.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Kristjánsson, fjármála- og
mannauðsstjóri, johann@nordichouse.is eða í síma 897 7099.
Umsóknum, sem skulu vera á sænsku, dönsku eða norsku,
þarf að fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf og skal skilað
á heimasíðuNorrænu ráðherranefndarinnarwww.norden.org.
Umsóknir sem sendar eru á annan hátt verða ekki teknar til
greina.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2022.
KYNNINGAR-OGSAMSKIPTASTJÓRI
Norræna húsið óskar eftir að ráða skapandi og drífandi
einstakling í starf kynningar- og samskiptastjóra, í lifandi og
skemmtilegu umhverfi. Um er að ræða starf sem snýr að
markvissri miðlun og kynningu á því fjölbreytta menningar‐
starfi sem fram fer í Norræna húsinu. Viðkomandi mun bera
ábyrgð á samræmingu kynningarmála, samskiptum við fjöl‐
miðla og samstarfsaðila, gerð kynningarefnis og fleira sem
við kemur kynningu á viðburðum og samskiptum.
HELSTUVERKEFNI
• Umsjónmeð kynningar- og samskiptamálumNorræna
hússins í samstarfi við forstjóra
• Stýra markvissri og lifandi stafrænni kynningu gegnum
samfélagsmiðla og vef Norræna hússins
• Samskipti við fjölmiðla
• Samræma kynningumenningarviðburða
• Gerð kynningarefnis og birtingaráætlana fyrir alla miðla
MENNTUNAR-OGHÆFNIKRÖFUR
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða
æskileg
• Umtalsverð reynsla af kynningarmálum, helst á sviði
menningar
• Reynsla af vefstjórn og upplýsingamiðlun á
samfélagsmiðlum
• Reynsla af samskiptum við fjölmiðla
• Góð samskiptahæfni og stefnumótandi hugsun
• Rík áhersla á frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
• Hugmyndaauðgi og drifkraftur
• Mjög góð færni í íslensku og ensku, góður skilningur í
dönsku, sænsku eða norsku nauðsynlegur
• Góð tölvukunnátta
VERKEFNASTJÓRI
Norræna húsið óskar eftir að ráða öflugan verkefnastjóra
til að hafa umsjón með verkefninu Norðurlönd í fókus sem
leggur áherslu á framtíðarsýn norræns samstarfs 2030 um
að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði
heims. Með málstofum, stórum og smáum viðburðum og
stafrænum herferðum snýst verkefnið um að vekja athygli
á stefnu Norðurlandanna hvað þetta varðar. Sem verkefna‐
stjóri hefur þú einnig það hlutverk að leiða skrifstofu um‐
hverfisverðlauna Norðurlandaráðs.
HELSTUVERKEFNI
• Stjórnun viðburða ogmiðlun upplýsinga sem varða
samstarf í Norrænu ráðherranefndinni og
Norðurlandaráði
• Fylgjast með ogmiðla málefnum í brennidepli á Íslandi
og á Norðurlöndum
• Umsjónmeð störfum dómnefndar umhverfisverðlauna
Norðurlandaráðs
• Vinna náið með starfsfólki Norræna hússins að
verkefnum hússins
MENNTUNAR-OGHÆFNIKRÖFUR
• Háskólamenntun í félagsvísindum, fjölmiðlun eða á öðru
sviði sem nýtist í starfi
• Að lágmarki fimm ára reynsla af störfum tengdum
upplýsingamiðlun
• Mikil skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
• Góð samskiptahæfni og geta til að sýna sveigjanleika og
nákvæmni
• Hæfni til að geta tjáð sig vel í skrifuðu og töluðumáli
• Mjög góð færni í íslensku og ensku, ásamt einu af
eftirfarandi tungumálum: dönsku, sænsku eða norsku
• Góð tölvukunnátta
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is