Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 67
4.459 kr.
Horfnar
Það er sumarbjart og sólin
skín við Kirkjubæjarklaustur.
Tvær þýskar vinkonur á
bakpokaferðalagi heillast
af stórbrotinni náttúrunni.
Undir friðsælu yfirborðinu
við Klaustur leynast þó myrk
leyndarmál sem stúlkurnar
tvær vilja ekki vita af.
5.799 kr.
Kynslóð
Hin tvítuga Maríanna vinnur
í Skálanum – á milli þess
sem hún skemmtir sér með
kærastanum og aðstoðar
ömmu sína og afa við
bústörfin. Svo þarf að tækla
foreldrana. En framtíðin lúrir
handan við hornið og Ransí
á Giljum sér breytingar í
bollunum sínum. Og svo birtist
nýr strákur í þorpinu...
5.399 kr.
Veistu, ef þú vin átt
Haustið 1946 fluttist
Aðalheiður Hólm af landi
brott með hollenskum
eiginmanni sínum. Þá stóð
hún á þrítugu en hafði engu
að síður komið víða við
sögu. Átján ára stofnaði hún
Starfsstúlknafélagið Sókn
sem sameinaði konur í lægstu
stéttum þjóðfélagsins í baráttu
þeirra fyrir mannsæmandi lífi.
5.999 kr.
Milli vonar og ótta
Íslenskar ljósmæður þurftu
í aldanna rás að brjótast í
öllum veðrum, oft um erfiðar
leiðir, til að sinna fæðandi
konum sem biðu milli vonar
og ótta eftir aðstoð. Þær
tóku á móti börnum við alls
konar aðstæður á misjafnlega
búnum heimilum.
4.899 kr.
Skipskaðar á svörtum
söndum
Sandarnir miklu á
suðurströndinni hafa orðið
grafreitur margra skipa í
aldanna rás. Barátta sjómanna
í brjáluðu brimi fyrir lífi sínu
hefur oftar en ekki verið
tvísýn. Margir komust ekki
lifandi frá borði. Þeirra sem
náðu í land beið oft erfið
ganga í leit í að byggð.
4.598 kr.
Íslenskar draugasögur
Er þetta einungis vindurinn
að berja á gluggann þinn?
Er brakið í gólffjölunum
ekkert annað en dragsúgur?
Er þetta bara skuggi þarna í
horninu? Eða er þetta kannski
eitthvað ískyggilegra, eitthvað
óhugnanlegra, eitthvað ekki af
þessum heimi?
5.499 kr.
Af nótnaborði
náttúrunnar
Það er eins og úrið hægi á
sér þegar Páll á Húsafelli er
sóttur heim, enda er tíminn
í hans húsakynnum ekki af
klukkuverki þessa heims.
Ljúfmennskan ræður þar
mestu, í bland við háttvísi og
æðruleysi, en samfundir með
listamanninum eru þeirrar
náttúru að allt um hægist.
4.799 kr.
Gunni Þórðar – Lífssaga
Lífshlaup Gunnars Þórðarsonar
er í senn furðulegt og stórkost-
legt. Fáir núlifandi íslenskir
tónlistarmenn komast með
tærnar þar sem hann hefur
hælana. Þetta er saga um
strák, kominn af veðurbitnum
bændum og sjómönnum norður
á Ströndum, sem kemur suður
og verður undrafljótt fremsti
dægurtónlistarmaður landsins.
4.759 kr.
Útkall – í auga
fellibylsins
Þrír menn eru á leið frá
Kanada til Íslands á lítilli skútu,
á einu hættulegasta hafsvæði
veraldar, þegar brestur á
fárviðri. Tveir Íslendingar, sem
aldrei hafa kynnst siglingum
áður, verða að liggja á gólfi
káetunnar í ofsanum í tugi
klukkustunda.
Lægra verð – léttari innkaup
Bókaðu gleðileg jól
Með því að nýta þér netverslun Nettó
sparar þú þér tíma í jóla amstrinu.
Nýttu tímann frekar í að lesa góða bók.
Úrval bóka er mismikið eftir verslunum.
Jólainnkaupin
hafa aldrei verið eins leikandi létt.
Þú færð jólabækurnar á netto.is
4.899 kr.
Skaði
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Guðgeir er kallaður að
tjaldsvæðinu í Herjólfsdal
þegar ljóst er að þar hafa átt
sér stað voveiflegir atburðir.
Skemmtiferð vinahjóna
virðist hafa farið á annan
veg en til stóð. Rannsóknin
teygir anga sína víða, allt frá
eldfjallaeyjunni til frumskóga
Mið-Ameríku.